Sameiningin - 01.08.1893, Blaðsíða 12
—92—
en samþykkt var, að' leggja þau fyrir þessa árs alþingi. — Af
hinum tveim frnmvörpum er það um skipulag hinna andlegu
mála að sjálfsögðu þýðingarmeira, og er þetta samkvæmt
„Kirkjuhlaðinu" aðalefni þess:
„Hin íslenzka þjóðkirkja stjórnar sjálf andlegum málum
sínum, að því er snertir kenning, kirkjusiði, eíiing kristindóms-
ins yfir höfuð og uppfrœðing ungmenna í kristindómi; hún sam-
þykkir og bœkr þær, er að þessu lúta, en biskup landsins lög-
gildir þær.“
„Yfirstjórn hinna andlegu kirkjumála hefir biskup lands-
ins. Til ráðaneytis sér hefir hann kirkjuráð'; eru í því stift-
amtmaðr1) og þrír andlegrar stéttar menn, sein prestastefnan2)
kýs til þess starfa til 6 ára.“
„þá er biskupssætið verðr autt, skulu allir prófastar lands-
ins, sem fá því við komið, og einn prestr og einn safnaðarfulltrúi
úr hverju prófastsdœmi, er til þess skulu kosnir á héraðsfund-
um, eiga samkomu í Reykjavík og kjósa þar biskup, en kon-
ungr staðfestir kosninguna."
„Á prestastefnu2) eiga sæti allir andlegrar stéttar menn
landsins, þeir er í embættum eru, og einn leikmaðr úr hverju
prófastsdœmi, sem til þess skal kosinn af héraðsfundi næsta á
undan.“
j)aö er eins og hið sama hafi vakað fyrir ncfndinni, sem
komið hefir með frumvarp þetta, eins og ritstjórn þessa blaðs um
árið, þegar seinustu biskupaskiftin urðu á fslandi. þeim brœðr-
um vorum í nefndinni kemr augsýnxlega saman við oss um það>
aðkirkjan í heild sinni, en ekki neinn einstakr valdsmaðr, eigi
að ráða því, hver sitr í hinu œðsta kirkjulega embætti í landinu.
Og þar sem þessi síðasta synódus í heild sinni augsýnilega hefir
verið nefndinni samdóina um þetta atiiði, þá styrkir það oss í
þeirri trú, að kirkjulýðrinn íslenzki í heild sinni eða með mjög
fáum undantekningum sé að minnsta kosti nú samþykkr þeirri
skoðun, sem vér á sínutn tíma höfum haldið fram viðvíkjandi
veiting biskupsembættisins. Um hitt geta auðvitað verið deild-
1) Hálf-leiöinlegt cr að sjá „stiftamtmanns11-nafnið sáluga vakið upp aftr í
þessu frumvarpi.
2) Er ekki óviðkunnanlegt að kalla synódus ,,/mtostefnu“ eftir að leikmenn
landsins eru farnirað fá að vera ]>ar með prestunum?