Sameiningin - 01.08.1893, Side 13
■93—
ar skoðanir, hvort biskupsembættiS er svo alveg ómissanda fyrir
kirkju íslands, eins og b'ka um ];að, hvort það fyrirkomulag,
sem nefndin stingr upp á viö kosning biskups, ef biskupsem-
bættiuu skal endilega haldið, er hið heppilegasta, sein hugsazt
getr. En hvað sem um ]mð kann að mega segja, þá má fullyrða,
að bæði þessi tillaga og aðrar í frumvarpi nefndarinnar verða
verulegar réttarbœtr fyrir kirkju Islauds, ef þær verða að lcigum.
Nýlunda er það á þessari synódus, að einn prestr, séra Ó-
lafr Ólafsson í Arnarbœli, flutti þar fyrirlestr. Talaði hann um
húsvitjanir í þeim fyrirlestri.
Kristniboðsmálinu var hreift, en undirtektirnar voru dauf-
ar, að því er „Kirkjublaðið" segir, og engin ályktan tekin um
það mál.
Hreift var samskotum til hinnar fyrirhuguðu skólastofn-
unar kirkjufélags vors hér í álfu, og samþykkt svolátandi
tillaga:
„Synódus lýsir yfir því, að hún sé því lflynnt, að leitað sé
samskota til skólastofnunar hins ev. lút. kirkjufélags ísl. í
Y.heimi, og telr presta landsins sjálfkjörna flyténdr þess máls í
söfnuðunum."
Og var svo af þeim, er viðstaddir voru, skotið saman 70
krónum skólasjóði vorum til handa.
Fleiri mál hafði synódus þessi meðferðis, þótt eigi só hér
getið. — Nefndin, sem sett hafði verið á sínum tíma til að endr-
skoða handbók presta, hafði eigi lokið starfi sínu, eins og eigi
var von. Og er vonanda, að enn líöi nokkur ár áðr en þeirri
endrskoðan verðr lokið, svo nefndin fái ncegan tíina til að
©
kynna sér það, sem í þeirri grein er til fullkomnast í kirkjum
annarra ]>jóða, áðr cn hún kemr með tillögur sínar.
-------^oo ------------
HÁSKÓLINN 1 DORPAT.
Hinn þýzk-lúterski liáskóli í Dorpat í Rússlandi, sem
langa-lengi hefir talinn verið mcðal merkustu menntastofnana
þjóðverja, er nú svo gott sem af tekinn, með því hin rússneska
harðstjórn hefir ueytt hina þýzku kennara háskólans til að segja
af sér og fara burt. það er all-langr tími síðan stjórnin hóf of-