Sameiningin - 01.08.1897, Page 6
Félagsleg mótspyrna frá hálfn afneitenda kristinnar trúar gegn
starfsemi safnaöa vorra er ekki lengr teljandi. Þau blöð, sem þeirri
mötspyrnu hafa helzt lialdið á lofti, hafa hætt að koma út á árinu.
Erviðleikarnir, sem við er að stríða, liggja nú nálega eingöngu hjá
safnaðalýðnum eða með öðrum orðum sjálfum oss.
,,Sameining'in“. málgagn kirkjufélagsins, hefir enn langtum of
litla útbreiðslu og fjárhagr blaðsins er jafnvel lakari en í fyrra, eins
og þór munuð sjá á skýrslu útgáfunefndarinnar. Á því þyrfti endi-
lega að ráða bót.—,,Aldamót“, ársrit prestanna, ætti líka að geta
fongið miklu meiri útbreiðslu en þau hingað til hafa haft.
En yfir höfuð hefir árið hið liðna verið fyrir oss gott ár og bless-
unarríkt, og ætti það að vera oss hvöt til þess að halda félagsvinnunni
áfram með öruggum hug og biðjandi trú í Jesú nafni.'1
1 neí'nd til að íhuga ársskýrslu forseta og jafnframt til að
veita kirkjuþingsmálurn viStöku og raða þeim niðr á dagskrá
voru kosnir: séra Friðrik J. Bergmann, séra Björn B. Jónsson
og Arni Sigvaldason.
O o
Kosning embœttismanna
fyrir koraanda ár fór því næst fram, þannig : forseti séra Jón
Bjarnason, varaforseti séra Friðrik J. Bergmann,—endrkosnir;
skrifari séra Jónas A. Sigurðsson, varaskrifari séra Björn B.
Jónsson,—endrkosnir; féhirðir Jón. A. Blöndal, varaféhirðir
Halldór S. Bardal.
Fundarreglur félagsins upplesnar.
3. fundr, sama dag kl. 8 e. m.
Nefndin út af ársskýrslu forseta og dagskrá þingsins kom
með svo hljóðanda álit sitt:
„Vér, sem koanir vorum í nefnd til að yfirfara ársskýrslu forseta
og raða málum á dagskrá kirkjuþingsins, leyfum oss fyrst að láta í ljós
ánœgju vora yfir aískiftum forseta af öllum málum kirkjufélagsins á
árinu, sem leið, og biðjum drottin að leggja blessan sína yfir öll
störf hans í þjónustu kirkjufélagsins á ókominni tíð.
Samkvæmt ársskýrslunni, sem vér nákvæmlega höfum yfirfarið,
eru það tvö mál, er byrjuð hafa verið í söfnuðum kii-kjufélagsins þetta
liðna ár, missiónarhátíðarhaldið 81. Okt. og samtalsfundifnir í söfnuð-
unum, sem vér álítum áö verða megi framtíð safnaða vorra til hinn-
ar mestu blessunar. Leyfum vér oss þess vegna að ráða kirkjuþingi
þessu til, að minna söfnuðina á, að láta þessi tvö mál ná fullri festu í
lífi sínu fi'amvegis, svo að missíönar-guðsþjönusta verði haldin ár
hvert í sem allra flestum söfnuðum vorum. með ofr-litlum samskotum
til missíönar kirkjufélagsins, og samtalsfundirnir verði sem allra flestir.
Þau mál. sem vór finnum ástœðu til að setja á dagskrá kirkjuþings-
ins, eru þessi:
1. missíönar-málið,
2. bandalögin,
3. sunnudagsskölamál.