Sameiningin - 01.08.1897, Side 11
—75—
i
sinni. í fundarlok var samþykkt að halda umrœSum þessum
áfram síðar á þinginu, ef tdmstund yrði frá öðrum fundarstörf-
um, en slík tómstund fékkst aldrei.
8. fundr, sama dag kl. 7.45. e. m.
Bandalagamálið' tekið fyrir á ný. Út af umrœðunum um
mál þctta, sem áðr höfðu farið fram, á 6. fundi, kom nefndin
nú með tillögu um eftirfylgjandi breytingar á 1. grein álíts síns:
1) að á eftir orðunum: „Að söfnuðir kirkjufélagsins“ komi:
„er njóti reglulegrar prestsþj<5nustu“, og 2) að á eftir orðunum :
„koma þeim á fót“ komi: „þar sem slíku verði viðkomið'1..—
þessi tillaga nefndarinnar var mótmælalaust samþykkt. Engri
frekari breyting á nefndarálitinu var hreift, og að lokum var
það samþykkt í heilu lagi með áorðinni breyting.
I hina standandi nefnd út af bandalagamálinu, sem hið
samþykkta álit gjörir ráð fyrir, voru kvaddir sömu mennirnir
og áðr: séra Jónas A. Sigurðsson, séra Jón J. Clemens og Run-
ólfr Marteinsson.
Bindindismáls-dagr. Skrifleg áskoran kom inn á þing
frá W. C. T. U. (Women’s Christian Temperance Union), hinu
alkunna „kristilega kvenfélagi til stuðnings bindindi“, um það,
að kirkjufélagið mæli með því, að prestar í prédikunum sínum
vekji athygli safnaða sinna á bindindismálinu fjórða sunnudag í
Nóvember frainvegis. Samþykkt var, að taka áskoran þessa
til greina og skrifara kirkjufélagsins falið að skýra bréfritaran-
um frá undirtektum kirkjuþingsins.
Sunnudagsskólamálið. Nefndin í því máli lagði fram svo
hljóðanda álit:
„Hevra forseti!
Nefndin í sunnudagsskólamálinu leggr fram eftirfylgjanda álit
sitt:
Vér alítum mjög nauðsynlegt, að allir sunnudagsskðlarnir lrafi
sem líkast fyrirkomulag og kennsíuaðferð. Vér bendum á samþykktir
fyrri þinga um, að sunnudagsskólablöð General Council’s sé viðhöfð í
skólum voium. Vér álítum sjálfsagt, að þau blöð sé viðtekin í öflum
söfnuðunum; en oss er ljóst, hve miklir örðugleikar eru á því, að blöðin
sé á ensku. en kennslan fari fram á íslenzku. Því ráöúm vér kirkju-
þinginu til að taka boöi blaðs-útgefend.anna Westdals & Björnsons um
aö gefa út íslenzkt biað fyrir skðlanaeftir fyrirmynd Gen. Council’s-
blaðanna og leggjum til, að þingið kjósi ritstjórn fyrir blaðið og feli
bverjum presti og'fuiltrúa að safna áskrifendum að' bluðinu, svo það
geti byrjað að koma út á næsta hausti,“