Sameiningin - 01.08.1897, Blaðsíða 12
Nefndaráliti þessu fylgdi eftiifjdgjanda bréf til nefndarinn-
ar, innihaldanda tilboð það, sem nefndarálitið bendir til:
,,Við undii'skrifaðir gjörum hér með syo látanda tilboð um útgáfu
sunnudagsskólablaðs:
Við skulum gefa út blað á íslenzku að stœrð og öllum frágangi
jafnt „Sameiningunni“, sem koma skal út einu sinni í mánuði hverj-
um, ogað innilialdi sniðið eftir kennslublöðum Gen. Councii’s. Ritstjóra
þessa blaðs má kirkjufélagið velja, en ekki getum við borgað nein
ritstjörnarlaun. Við skulum byrja útgáfu blaðs þessa á næsta hausti,
með því skilyi’ði, að kirkjuþing þetta mæli með fyrirtœkinu og útvegi
blaðinu 400 kaupendr. Hvert eintak kosti 50c. og borgist fyrirfram.
Við bjóðum yðr ábyrgðarmenn, eða hverja. þá trygging, sem þér
œskið fyrir því, að við skulum standa við tillioö þetta og samninga
þá, er gjörðir verða við okkr.
Minneota, Minn., 25. Júní 1807.
Westdal & Björnson.11
Tillaga kom fram eftir að byrjað var að rœða mál þettaum
að þeim umrœðum væri frestað þangað til búið væri að skoða
íjárhag „Sameiningarinnar“. Sú tillaga var samþykkt.
„SameininginReikningar þess blaðs voru þálagðir fram
af féhirði útgáfunefndarinnar, Jóni A. Blöndal. Og höfðu þeir
áðr verið yfirskoðaðir af Magnúsi Pálssyni og Andrési Frímann
(í forföllum hinna kjörnu yfirskoðunarmanna: Sigtryggs Jónas-
sonar og Vilhelms Pálssonar). Samkvæmt reikningi þessum
var blaðið í $171.17 skuld. En upp í skuld þessa var til ! sjúði
hjá féhirði $24.31, svo að í rauninni var skuldin nú $146.86
($11.03 meiri en í fyrra). Og að nafninu átti blaðið úti stand-
andi skuldir, er námu $1905.10 (nefnilega $50.50 fyrir 5. árg.,
$75.00 fyrir 6, árg., $120.00 fyiir 7. árg., $165.00 fyrir 8. árg.,
$210.00 tyrir 9. árg., $285.00 fyrir 10. árg.,$368.60 fyrir ll.árg.,
$611 00 fyrir 12. árg).
Við umrœðurnar, sem síðan húfust um ,,Sameiniriguna“
var komið með ýmsar bendingar í þá átt, að greiða úr fjárhag
blaðsins og auka útbreiðslu þess. En niðrstaða varð þó engin
önnnr er það, að fela hinni vamtanlegu útgáfunefnd málið al-
gjörlega á hendr.
9, lundr, mánudag, 28. Júní, kl. 9. f. m.
Sunnudagsshólamálið', sem samkvæmt áliti nefndarinnar,
er fram var lagt á næsta fundi á undan, eingöngu snerist um
blaðútgáfutilboð þeirra Westdals og Björnsons, var rœtt allan
þennan fund út? en úrslitum þess var írestað í bpáð,