Sameiningin - 01.08.1897, Page 15
—79—
13. fundr, sama dag kl. 2.15 e. m.
YJirlýsing i Gen. Council-málinu.
Út af atkvæðagreiðslunni í málinu um inngöngu kirkjufélags-
ins í General Council var svo hljóðandi tillaga til yfirlýsingar
frá þinginu borin fram og samþykkt:
„Af því að atkvæði hafa héi' á kirkjuþingi fallið á möti því, að
kirkjufélag vort nú þegar gangi í General Counoil, og af því að fólk
út í frá kynni, ef þegjandi væri slcilið við máliö í þetta sinn með niðr-
stöðu þeirrar atkvæðagreiðslu, að álykta, að þeir, sem setið hafa á
þessu þingi, sé í hugum sínum'og hjörtum á möti inngöngunni, og af
því að hætt er við, að slíkr skilningr myndi spilla fyrir málinu i fram-
tíðinni meðal fólks safnaða vorra, þá gjörum vér eftirfyigjandi yfir-
lýsing:
Nálega aliir þeirra, er sótt hafa kirkjuþing þetta, bæði af prest-
um og erindsrekum safnaðanna, eruaföllu hjarta með því, að kirkju-
félagið sameinist General Council, þó að ekki gæti í þetta sinn feng-
izt fullnaðarályktan því viðvíkjandi fyrir þá sök, að ályktanin var
bundin við tvo þriðjunga atkvæða. En það, að nokkrir kirkjuþings-
menn greiddu atkvæði á möti, var að eins fyrir þá sök, að þessir ein-
stöku höfðu það á meðvitundinni, eða tilfinningunni, að málið væri
ekki enn fyllilega ljóst öllum almenningi í sumum söfnuðunum og
timi tii fullnaðarályktanar frá þeirra sjónarmiði því miðr ekki enn
kominn. Hinsvegar göngum vér út frá inngöngu félags vors í Gene-
ral Council eins og nokkru, er að sjálfsögðu liggi að guðs vilja fyrir
í nálægri framtíð, og teljum hiklaust inngönguna, hve nær sem af
henni verðr, hið mesta heillaspor á framfaraskeiði ldrkjufélagsins."
því næst var máli þessu vísað til sömu standandi nefndar-
innar, sem í því var sett í fyrra (séra Björn Jónsson, séra Jónas
A. Sigurðsson og séra Friðrik J. Bergmann), en síðan var tveim
nýjum iniinnum bœtt við í þá nefnd, þeiui séra Jóni Bjarnasyni
og séra Jóni J. Clemens.
Skólamálið
var þá tekið fyrir. Nefndin, sem í því var sett í fyrra, hafði
ekkert eiginlegt álit fram að leggja, fyrir þá sök, að hún hafði
ekki getað komið sér sainan uin neina beina tillögu málinu við-
víkjandi. En þeir 4 skólanefndarmeun (séra Friðrik J. Berg-
mann, Friðjón Friðriksson, séra Jónas A. Sigurðsson og séra
Björn B. Jónsson), sem ú þinginu sátu—fimmti nefndarmaðrinn
Magnús Pálsson hafði ekki komið til þings—lögðu frarn svo
hljóðandi skýrslu skólasjóðnum viðvíkjandi o. s, frv.
,,Jlerra forseti!
Skölasjóðrinn hefir auldzt töluvert á hinu liðna ári, og drottinn
liefir blessað viðleitni vora jafnvel fram yfir vonir vorar. Tekjur
skölasjóðsins hafa á þessu liðna ári vei'ið eins og nú skal greina;