Sameiningin - 01.08.1897, Side 29
—93 -
þær, sem trúarbrœðr vorir í General Council bjóða mönnum í
hinu spán-nýja sunnudagsskólablaði sínu og hafa enn þá engan
veginn fengið þar almenna útbreiðslu. Ekki svo að skilja, að
vér höfutn í sjálfu sér neitt á móti því lexíuvali. En ekki
tekr það að vorri hygjrju minnstu vitund fram hinum almenuu
sunnudagsskólalexíum (international sunday school lessons),
sem staðið hafa í „Sameiningunni" frá því fyrst, er hún fyrir
nærri því 12 árum hóf göngu sína. Og af því að hið nýja lexíu-
val er að engu betra en hið gamla, þá hefir oss fundizt, að þetta
uppátœki mannanna í Gen. Council að taka sig út úr með sínar
lexíur, væri með öllu óþörf tiktúra. Meðal prestanna í kirkju-
félaginu, sem sátu á kirkjuþirtginu, stendr nú reyndar ritstjóri
„Sameiningarinnar“ aleinn uppi með þessa sannfœring. Hinir
prestarnir líta allt öðruvísi á það mál, og er ekkert um það að
tala. En það þótti oss slæmt við rekstr málsins úr þeirri átt,
að aigjörlega var gengið fram hjá því, að til eru góð og gild
sunnudagsskólablöð lútersk, sem binda sig við hinar eldri al-
mennu lexíur, eins og t. a. m. Augsburg Teacher og Augsburg
Lesson Book, sem einnig eru notuð í sunnudagsskólum innan
General Council’s. En lakast af öllu, að leikmönnun-
um, sem sátu á kirkjuþinginu, var með prestunum
ætlað að greiða atkvæði uin inn'leiðslu hins nýja lexíu-
vals, og þar af leiðanda um gildi þess í samanburði
við aðrar lexíur, því um það mál var vitanlegt að lang-fæstir
þeirra myndi bærir að dœma. — Málið um inngöngu kirkjufé-
lags vors í General Council gekk skrítilega. Fyrstkom nefnd-
in, sem í því var sett í fyrra, ineð þá yfirlýsing, að hún þyrði
ekki að ráða þinginu til að samþykkja inngönguna enn þá. En
er þetta álit kom inn á þing, var svo á mönnum að heyra, að
þannig löguð varkárni hefði verið ástœðulaus. Og var málinu
svo vísað til nefndarinnar aftr í því skyni, að hún breytti til-
lögu sinni og réði til inngöngu tafarlaust. Engu að síðr féllu
nú atkvæði svo um hina nýju tillögu nefndarinnar, er hún
hafði lagað eftir því, sem henni bafði skilizt að væri vilji alls
þorra þingmanna, að inngangan gat í þetta skifti ekki orðið
samþykkt. Mál þetta býðr þannig enn til seinni tíma, og var
það víst réttara eius og á steudr hjá oss enn sem komið er. því
mjög er hætt við því, að oss myndi ofaukið í félagskap Genc~