Sameiningin - 01.10.1899, Síða 8
120
mikla trés, sem hann síöar verSur. BarniS á langt í land til
þess aS verSa maSur. Hversu veikburSa er ekki æskan?
Gáfur barnsins eru óþroskaöar, hæfilegleikar þess óæföir. það
er enn án speki, án þekkingar, án krafta til aS koma nokkru
góSu eSa miklu til leiSar. paS er mjög ófullkominn maSur.
Og hver myndi þó álasa því fyrir þetta þroskaleysi? þaS er
fegurS í ófullkomlegleika þess.
Vér erum öll börn á ýmsu skeiSi. Líf vort er enn ófull-
gjört og óþroskaö, en ef vér lifum eins og ber aö gjöra, þá er
sönn siöferöisleg fegurö í ófullkomlegleika vorum. petta er
eölileg og sjálfsögö framfara-rás fullkomlegleikans. Skóla-
verk barnsins getur veriö mjög gallaS, en samt fagurt og lofaö
góSu, ef þaö vitnar um stööuga viöleitni í framfara-áttina.
Kennarinn hrósar barninu þegar hann skoSar skrifbókina
þess, og segir aö þaS hafi gjört verk sitt ágætlega. En svo,
ef þú lítur á bókina, þá sér þú ótal margt til aö setja út á, því
drættirnir eru stiröir og óreglulegir og stafirnir Ijótir í laginu,
og þú skilur ekki hvernig kennarinn hefir getaS lokiö lofsoröi
á annaö eins verk. Hann fann sanna fegurö í því, þegar
hann bar saman fyrstu og seinustu síöuna, því þá sá hann
framfarirnar.
Og þannig er því variö meö allan lærdóm. BarniS gekk
þrjú spor einsamalt, og móöirin er frá sér numin af fögnuSi
yfir þrekvirki þess, því þetta voru fyrstu sporin. Lítil stúlka
situr viS hljóöfæriö og spilar einföldustu æfingarnar sínar án
þess aS fipast mikiö, og alt fólkiö hennar undrast og dáist aö
hvaS vel henni gangi. Samt mátti mjög mikiö finna aö þessu
sem sönglist. Ef eldri systirin, sem búin var aS æfa sig í io
ár, spilaöi ekki betur en barniS, þá hefSi þaö aö eins vakiö
vonbrigöi áheyrendanna, en ekkert lofsyrSi. Ófullkominn
hljóðfærasláttur var fagur, því þó hann væri á lágu lærdóms-
stigi, bar hann þó vott um ástundun og dyggilega æfingu
barnsins.
MóSir nokkur kom aS drengnum sínum, þar sem hann
var aS reyna aS teikna. Tilraunir hans voru klunnalegar, en
hin skarpa sjón og heita löngun móöurinnar fann fljótt fegurS
í myndum hans. pað fólust í þeim fagrir spádómar um fram-