Sameiningin - 01.02.1900, Qupperneq 10
hinum gleðilegasta í þeim kafla æfi minnar, sem er viö ísland
tengdr, þrátt fyrir sumt, sem eg heföi kosiö á annan veg. —Á
þeim fundi sat, meöal annarra góöra vina, Nestor prestanna
á Islandi í nútíðinni, séra þorvaldr Bjarnarson. Hann er al-
kunnr fróöleiksmaör og gefr sig meðal annars nú mjög við
enskum kirkjulegum bókmenntum, sem mun heldr fátítt á
meðal íslenzkra sveitapresta — því ekki tel eg þar til ensku
vantrúar-heimspekina í bókasafni eins vinar míns í höfuðstaö
norðrlands, Akreyri.
Frá kirkjuþinjgi „General Councils“.
Eftir séra N. Stgr. Þorláksson.
II.
Forseti General Councils fyrir næstu tvö ár var kosinn
sœnskr prestr, dr. Matt. C. Ranseen í Chicago. Varafor-
setar eru sjálfkjörnir allir forsetar hinna ýmsu kirkjufélaga G.
C.s nema forseti þess kirkjufélags, sem forseti G. C.s er úr.
Forseti sœnsku sýnódunnar er þess vegna nú ekki í tölu vara-
forsetanna. Eiga þeir því vitanlega allir sæti á þingi G. C.s
og eiga að leggja fram fyrir það skýrslur um hag og starfa
sinna kirkjufélaga. Eru þeir allir í framkvæmdarnefnd G. C.s
ásamt með forseta, skrifurum (6) og féhirði. Sex stjórnar-
nefndir (Boards) voru kosnar; 4 í heima-trúboösmálið, 1 fyrir
hverja hinna 4 deilda, sem það skiftist í (sœnsk, þýzk, ensk
og innflytjenda-deildin); 1 í heiðingja-trúboðsmálið, og 1 út-
gáfunefnd, sem sér um útgáfu rita og bóka félagsins. Hafa
allar þessar nefndir á hendi meðferð alla og umsjón þessara
mála og framkvæmdir í þeim. Auk þeirra voru kosnar iystand-
andi nefndir í ýms önnur mál, stór og smá. Er þetta ofr lítið
sýnishorn af starfsemi félagsins; því nefndirnar eru allar starf-
andi, en ekki að eins ,,standandi“, og hafa sumar ákaflega
mikið verk að vinna. Skal eg geta þess, að það tók 4 klukku-
stundir að lesa upp skýrslu stjórnarnefndarinnar í heiðingja-
trúboðsmálinu. Skýrslur allar og álit allra þessara ýmsu
milli-þinga-nefnda er búið að semja, þegar á þing kemr. Var