Sameiningin - 01.02.1900, Page 12
latínuskóla Pittsburg-sýnódunnar — hafa 3 íslendingar út-
skrifazt af þeim skóla — og dr. Revere F. Weidner, forstöðu-
maðr Chicago-prestaskólans, tilheyrandi Chicago-sýnódunni—
4 af prestum vorum hafa útskrifazt af þeim skóla.
(Meira.)
------<-------------
The Lutheran Cyclopedia er ritverk eitt nýlega út komiö
á prent hjá Charles Scribner's Sons í New York, — eitt bindi
í stóru 8 bl. broti, hátt á 6. hundraö blaðsíöur. Aðal-ritstjór-
inn hefir veriö dr. H. E. Jacobs, hinn merki kennari við
prestaskólann lúterska í Philadelphia, en með honum hefir
John A. W. Haas prestr unnið í ritstjórninni. þetta er fjöl-
frœðibók fyrir lútersku kirkjuna, og hafa ritstjórarnir útvegað
sér í hana íitgjörðir, flestar mjög stuttar (smágreinir), en
sumar talsvert langar, frá prestum og guðfrœöingum í hinum
ýmsu deildum lútersku kirkjunnar í Vestrheimi. Og líka einn
hinna merkustu lútersku guðfrœðinga á þýzkalandi, prófessor
Zöckler í Greifswald, hefir verið fenginn til að leggja sinn
skerf, þótt ekki sé mikill að vöxtum, til ritgjörðasafns þessa.
Alls hafa til bókarinnar lagt um 180 manns, og er nafnaskrá
yfir rithöfundana aftast í verkinu.
Bók þessi er að ýmsu merkileg og getr orðið að miklu
gagni, ekki að eins fyrir presta, heldr líka fyrir leikmenn.
Hún hefir svo sem við er að búast stór-mikinn lúterskan fróð-
leik að geyma. Sumar ritgjörðirnar eru ágætlega vel samdar.
En hins vegar vantar þar ýmislegt, sem búast hefði mátt við
að stæði þar. Og stöku greinir eru villandi, — eins og t. a. m.
greinin um Manitoba [Lutheran Church in Manitoba) eftir
John Nicum í Rochester, N. Y., prófessor og doktor. Eftir
því, sem þar kemr fram, veit hann um enga aðra lúterska
menn í þessum parti landsins en j?á, er tilheyra þýzku sýnód-
unni frá 1897 ; og er þetta því merkilegra, þar sem dr. Nicum
hefir sjálfr komið hingað til Winnipeg og fleiri staða í
Manitoba.
En þótt vor íslendinga sé ekki getið á þessum stað í bók-
inni, pá er þó engan veginn svo að skilja, að annars sé þar
egjandi fram hjá oss gengið. þvert á móti er tiltölulega