Sameiningin - 01.03.1904, Qupperneq 7
3
við börn sín. Auk heimaprestsins, séra Rúnólfs Marteinsson-
ar, voru tveir af prestum kirkjufélagsins þar staddir, séra N.
Steingrímr Þorláksson og séra Jón Bjarnason, og enn fremr
var séra Einar Vigfússon á einum þeirra (aö Geysi). Síöara
daginn var snjóbylr og dró þaö úr aösókn fólks aö fundunum,
sem þá voru haldnir. Þó var fundrinn á Gimli talsvert fjöl-
mennr. Á öllum fundunum töluöu leikmenu og áttu góðan
þátt í því, aö þeir heppnuðust eins vel og reynd varö á.
Dr. Carl Aaron Swensson, forstööumaör fyrir Betany
College i Lindsborg, Kansas, andaöist (í Los Angelos í Cali-
forníu) 16. Febrúar á 47. aldrsári. Hann var einhver hinna
allra fremstu kirkjulegu leiötoga Augustana-sýnódunnar
soensku, og um tíma var hann forseti General Councils. Með
fráfalli hans á bezta aldri hefir lúterska kirkjan í heild
sinni orðiö fyrir stórkostlegu tjóni.I Júnímánuði síðastliðn-
um flutti ,,Sam. “ merkilega grein eftir dr. Swensson, sem
séra Björn B. Jónsson haföi þýtt.
J. C. Hcuch biskup í Noregi (í Kristjánssandi) er látinu.
Hann andaöist 13. Febrúar, 66 ára gamall, og missti kirkja
vor hin lúterska þar einhvern frægasta og ágætasta son sinn
og starísmann. Enginn á Norðrlöndum hefir meö ineiri
skarpskyggni, heitari andagift og sterkara sannfœringarafli
barizt gegn vantrú og hálftrú samtíðar sinnar en hann, og
sennilega hefir hann í því tilliti verið öllum fremri í þeirri átt
kristinnar kirkju. Hann ætti aö vera talsvert kunnr lesend-
um,,Sam.“, því blað þetta hefir öðruhverju birt ýms sýnis-
horn af vitnisburöum hans um trúna á Jesúm Krist. Heuch
var áðr prestr í Kristjaníu og kirkjulegr blaðstjóri og gat sér
jafn-mikla frægö í hvorritveggja stööunni. Prédikanasafn
eftir hann kom út 1887, sem er frábærlega mikils virði. A£
öðrum ágætum ritum eftir hann frá þeirri tíö iná nefna ,,Eðli
vantrúarinnar“ (Vantroens Vœsen). Undir kvöld æfidags
síns tók hann opinberlega til máls — og mjög sterldega — út
af nýju guðfrœðisstefnunni skynsemistrúarkenndu og biblíu*
‘kritíkinni’, sem á síöari árum hefir náð sér niðri meðal guð-.
rœö iskennara og presta í Norvegi eins og í öörum lúterskum