Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1904, Blaðsíða 8

Sameiningin - 01.03.1904, Blaðsíða 8
4 löndum. Þá kom út bók hans straumnum“ (Mod Strömmeu), og síöan önnur, sem nefnist ,,Svar“, því í hinni síöarnefndu bók svarar hann því helzta, sem kom fram til andmæla hinni fyrrnefndu bók. Svo sem við mátti búast varð hann fyrir mörgum spjótstungum af hálfu kirkjulegra andstœðinga sinna út af því, hve skýrt og hlífðarlaust hann opinberaði veilurnar og vantrúarandann í guðfrœðiskenning- um þeirra. Og segja má, að árásirnar á hann þessi síðustu ár æfi hans hafi verið eins og þétt örvadrífa. En hann kveinkaði sér ekki. Og með því að kasta sér þannig í drott- ins nafni út í baráttuna er enginn vafi á þvf, að honum hefir tekizt að stöðva eða brjóta skynsemistrúar-strauminn í norsku kirkjunni til stórra muna. Það er nú miklu fremr vörn en sókn fyrir talsmönnum nýju guðfrœðinnar í Norvegi. Og hinn trúaði leikmannalýðr þess lands hefir nálega undantekn- ingarlaust fylgt Hcuch biskupi að málum í styrjöld þessari. Nýlega kom út á Þýzkalandi bók ein eftir kaþólskan klerk Heinrich Denifle að nafni urn Lúter og kenning hans, og verðr því ritverki síðar haldið áfram. Höfundrinn hefir haft álit á sér fyrir það að vera heil-mikill vísindamaðr. En þetta ritverk hans einkennir sig að því, hve svört og svívirði- leg mynd þar er dregin upp af hinni miklu hetju reformazíón- arinnar. Af óteljandi níðritum, sem sett hafa verið sarnan um Lúter af páfamönnum, öld eftir öld allt fram á þennan dag, er þetta víst það svæsnasta og blygðunarlausasta. En það, sem merkilegast er, er það, að þessi rithöfundr kveðr upp dónr sinn hinn óskaplega og djöfullega yfir Lúter í nafni vísindanna. Þar er þá ein ,,niðrstaða hinna vísindalegu rann- sókna“ í nútíðinni. En jafnvel kaþólskir menn hafa risið upp til mótmæla gegn þessari ,,niðrstöðu vísindanna“. Lúter segir: Verzlunarmenn hafa þetta iðulega fyrir meginreglu, sem þeir bera fyrir sig í öllum fjármála-viðskift- um: Eg sel vöru mína eins háu verði og eg get fengið. Þetta telja þeir sig hafa rétt til. En á þennan hátt gefa þeir fjár- græðgi sinni lausan tauminn og opna um leið dyr og glugga helvítis eins mikið og verða má. Hvað annað myndi slíkt

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.