Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1904, Side 9

Sameiningin - 01.03.1904, Side 9
5 frterkja en jDetta: Eg þarf enga rellu að gjora mér út af ná- unga mínum—? Lát tnig hafa minn gróða; — lát mig full- nœgja ágirnd minni; og hvaö varðar mig svo um það, þótt náungi minn verði í einni svipan fyrir tíföldum rangindum—? —Gæt þess vel, hve stórkostlega þessi regla kemr í bága ekkl að eins við lögmál kristilegs kærleika, heldr og við lögmál náttúrlegs réttar. Hvað gott getr þá verið í verzlunarviðskift- um manna? Myndi nokkur slík viðskifti geta verið laus við synd, þar sem slíkr fjárdráttr er aðal-grein tniarinnar og megin-regla breytninnar hjá verzlunarmanninum? Með þessu er blátt áfram sett mark þjófnaðar og ránskapar á alla verzlan. Rúm tíu ár eru liðin síðan lærð kona ensk, frú Agnes Smith Lewis, fann í klaustri hinnar helgu Katrínar við Sínaí- fjall handrit frá fornöld af sýrlenzkri þýðing allra guðspjall- anna. Og grunaði biblíu-frœðinga víðsvegar um lönd brátt, að á því handriti myndi mikið aö grœða. Sá grunr er nú oröinn að fullkominni vissu eftir að handritið hefir af mörgum vel fœrum mönnum vandlega verið rannsakað. Það þykir sannað, að hinn gríski guðspjallatexti, sem þessi sýrlenzka þýðing er eftir gjör, hafi verið miklu eldri en nokkurt þeirra guðspjálla-handrita á hinni grísku írumtungu, sem nú eru til eða mönnum kunn; og að nákvæmni þykir þessi þýðing guð- spjallanna taka fram þeim sýrlenzku þýðingum, er áðr voru kunnar. Eftir henni má vissulega leiðrétta ýmsar smá-villur eða skekkjur, sem eftir að hún varð til hafa komizt inn í hinn gríska texta guðspjallanna fyrir gáleysi þeirra manna, er unnu að handritunum. í Lúk. 1,63—64 stendr f íslenzku biblíunni (samhljóða því, sem er í biblíum á öðrum tungum): (63. v.) ,,Hann beiddi um spjald, og reit þar á: Jóhannes er nafn hans; og furðaði alla á því. (64. v.) í þessu bili fékk hann aftr mál sitt, og tók hann þá að tala og lofa guð. “ Samkvæmt sýr- lenzku þýðingunni, sem um er að rœða, ætti orðin ,,og furö- aði alla á því“ að standa seinast í 64. versi, en ekki seinast í 63. v., og mun flestum finnast það eðlilegra.— I páskadags- guðspjallinu, Mark. 16, ætti á líkan hátt orðin ,,því hann var

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.