Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1904, Síða 10

Sameiningin - 01.03.1904, Síða 10
6 næsta mikill“ að foerast til, flytjast úr 4. v. inn í 3. v., og þau vers þá að hljóða svo: ,,Þær sögðu þá hver við aðra: Hver mun velta fyrir oss steininum frá grafarmunnanum? Því hann var næsta mikill. En er þær litu þangað, sáu þær, að steininum hafði verið velt burt. “ —Jólalofsöngr englanna í Lúk. 2, 14 hljóðar ekki eins í öllum fornaldar-handritunum grísku af því guðspjalli. Og í hinni nýju þýðing þess guð- spjalls frá endrskoðunarnefndinni í Reykjavík hljóðar hann svo: ,,Dýrð sé í upphæðum guði'::'), og á jörðu friðr meðal manna, sem velþóknan er á, “ og er síðari hluti þeirrar þýð- ingar samhljóða því, er stendr í nýju biblíuþýðingunni ensku (G/ory to God in the higliest, and on earth pcacc ainong wen in whom he is wellplcased); en á spázíunni út frá þeim stað er þess þar þó getið, að mörg forn handrit hafi annan les- máta, og að eftir honum verði þýðingin eins og hjá oss hefir tíðkazt:-----,,friðr á jörða og velþóknan yfir mönnunum“. Samkvæmt sýrlenzka handritinu er nú víst líka réttast að láta þau orð í íslenzku biblíunni standa, eða eins og fyrrum var: ,,og mönnum góðr vilji“. —I nýja testamentinu ísl. stendr— Matt. 27, 9: ,,Þannig rættist það, er Jeremías segir: Þeir tóku þá þrjátíu silfrpeninga, verð þess er metinn var“ o. s. frv. Þar er að rœða um leirkerasmiðsakrinn, sem keyptr var fyrir blóðpeningana. Hér hefir virzt villa hjá guðspjallamann- inum, því að orð þau, sem þar er vitnað til, finnast alls ekki í bók þess spámanns, sem nefndr er, heldr í spádómsbók Sak- aríasar (11, 12-13). Nafn Jeremíasar stendr nú ekki á þess- um stað guðspjallsins í sýrlenzku þýðingunni; spámaðrinn er þar látinn ónefndr,— og hefir vafalaust svo verið í frumtext- anum; og svo ætti framvegis að vera í biblíunni á íslenzku og öllum öðrum tungum. Þar með hverfr einn ásteytingarsteinn veiku trúarinnar hjá kristnu fólki. Þetta eru að eins sýnishorn af leiðréttingum þeim á þýð- ing guðspjallanna, sem sýrlenzka handritið nýfundna bendir til. *) Óþörf breyting er þetta frá þeirri niðrröSun orðanna, sern allir íslend- ingar hafa vanizt. -------—-------------

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.