Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1904, Síða 14

Sameiningin - 01.03.1904, Síða 14
formaör), Barner kammerherra, Bornemann kammerjung- herra, Davidsen háskólastjóri, og Asschenfeldt Hansen, prestr í Slemminge (pr. Saxkjöbing), formaör og féhirðir. Samskonar bandalög hafa stofnuð veriö í öðrum evangel- iskum löndum. Hér geta allir vinir drottins, sem elska biblíuna sfna, veriö með, ungir og gamlir, konur og karlar. Reyndar vitum vér þaö, að biblían mun verja sig sjálf, eða öllu heldr: að drottinn mun kunna ráð til að verja orð sitt. En vér vitum og, að drottinn mun hafa mál sitt fram fyrir bœn og baráttu vina sinna. Og ef börn guðs standa saman í þessu máli eins og þéttskipuð herfylking, þá skal muna um það. Hjarlanlega vildi eg líka með hugvekju þessari biðja þá menn, sem standa fyrir almennum félagsmálum víðsvegar um land, og þar næst einnig starfsmenn Heimatrúboðsins, og loks alla þá presta, sem líta á mál þetta eins og vér, að safna fólki drottins sam- an, hvern á sínum stað, til hluttöku í bandalagi voru. Árs- tillagið frá hverjum félagslim er ein króna.og fé þvf, sem safn- ast, verðr varið til útgáfu rita og annarra fyrirtœkja, er stutt fá að því, að hin dýrmæta biblía vor skipi framvegis öndvegi í hjörtum almennings eins og hún á tilkall til. I því að styðja að þessu getr söfnuðrinn verið með bæði í Danmörk, Norvegi og Svíþjóð, og öðrum evangeliskum lönd- um. En þá ríðr á, að hver einstaklingr gjöri skyldu sína og sé sér meðvitandi um hina persónulegu ábyrgð sína. Ef vér á þennan hátt skipum oss hver við annars hlið ut- an um drottin, þá mun biblíu-‘kritíkin’ líka neyðast til að verða til gagns.- Á það hefir verið bent, að þegar Baptistar hófu trúboð sitt hér í landi, þá fóru mörg guðs börn að koma auga á dýrð skírnarsakramentisins miklu betr og skýrar en áðr. Baptistarnir gátu eigi varnað því, að sú yrði afleiðing- in af tilraun þeirra til að kollvarpa því sakramenti. Þannig mun og afleiðingin af hinni niðrrífandi starfsemi biblíu-‘kritík- arinnar’ verða sú, að bæði gamla testamentið og nýja testa- mentið verðr guðs fólki langtum dýrmætara og meir ómissanda, svo framarlega sem vér í árvekni og bœn stöndum saman í baráttu þessari. Og að einu leyti enn mun

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.