Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1904, Side 16

Sameiningin - 01.03.1904, Side 16
sem nokkra verulega þekkingu haía á því; en hún getr vilit þeim mönnum sjónir, sem eru jafn-fáfróöir um þaö og höf- undrinn sjálfr. Eg ætla ekkert aö fara að deila við hr. G. Sv. um þaö, hvort kristnum mönnum sé heimilt eða skylt að boða heið- ingjum kristna trú. Vér kristnir menn höfum fengið þetta boð frá frelsara vorum Jesú Kristi: ,,Farið og gjörið allar þjóðirnar að lærisveinum, skírandi þær til nafns föðursins og sonarins og heilags anda, kennandi þeim að halda allt, sem eg hefi boðið }7ðr;“ og samkvæmt þessu boði teljum vér oss ekki að eins heimilt, heldr og skylt að starfa að útbreiðslu fagnaðarerindisins meðal heiðinna þjóða. Það er hverju orði sannara og viðrkennt af öllum kristnum mönnum.að heimahjá hinum svo nefndu kristnu þjóðum fer margt miðr en skyldi, bæði að því er snertir trú og siöferði. En það getr ekki num- ið úr gildi skyldu kristinna safnaða til þess að hlýðnast þessu boði frelsarans. Hér er tvöfalt verkefni fyrir hendi, bæði það að starfa að eflingu guös ríkis innan kristninnar, og að út- breiðslu þess meðal heiðingja, — bæði heimatrúboð og heið- ingjatrúboð. En það er á engum skynsamleguin rökum byggt að segja, eins og hr. G. Sv. virðist gjöra, að öðru verk- efninu megi ekki byrja að sinna fyrr en hitt sé fullkomlega af hendi leyst. Það er hætt við, að það yrði þá nokkuð lengi út undan. Það væri fróðlegt að vita, hverjar heimildir hr. G. Sv. hefir haft fyrir sér, þegar hann setti saman, almenningi til fróðleiks og uppbyggingar, þessa smekklegu klausu, sem eg tilfœri hér eins og hann hefir frá henni gengið: ,, Allir vita, hversu Dönum koma Asíuþjóðirnar lítið við; en þó senda þeir árlega trúboða til Indlands og Kína. En hver árangr trúboðs- ins sé, má sjá af því, að árið 1902 voru skírðar á Indlandi aS eins 11 manncskjur\ en í Kína 4 —fjórar(!) —; 13 trúboð- ar fengust við að ,,umvenda“ þessum 15 mannskepnum (8 á Indlandi, 5 í Kfna). Hvað ætli sá dagr heiti, þegar búið er að skíra hinar mörgu milíónir manna þar austr frá, þegar það gengr svona vel?!“—Þetta er nú allt, sem hann frœðir lesendr sína um árangrinn af trúboðsstarfsemi kristinna þjóða

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.