Sameiningin - 01.03.1904, Side 18
14
öðru en að það yrði bæði sjálfum honum og lesendum hans
ábati.
Ritsljóri ,,Fjallkonunnar“ hefir'gjört svo hljóðandi athuga-
sem við greinina: ,,Grein þessari erum vér ekki að öllu leyti
samdóma. “ Ritstj. er' prestr kristins safnaðar, Fríkirkju-
safnaðarins í Reykjavík; hann gjörir vonandi áðr en langt líðr
grein fyrir því, hvað það er í greininni, sem hann getr verið
höfundi hennar samdóma um, og hversvegna hann lét
blað sitt flytja hana,—því þ a ð langar fleiri en mig til að vita.
ii. Febr. 1904.
Frá missíónarpresti kirkjufélagsins.
Eg byrjaði árið 1904 með því að heimsœkja Trínitatis-
söfnuð í Big Grass, Man., og veita honum hálfsmánaðar
prestsþjónustu. þremr dögum varði eg til þess að heimsœkja
menn; allir tóku mér forkunnar-vel og fengu mér tafarlausa
keyrslu um byggðina. Síðan settist eg urn kyrrt hjá Jóni
Austmann og varði tímanum, mánuði, til þess að lesa yfir
kristindómsfrœðin með 6 unglingum, sem höfðu þegar búizt
við fermingu. — Þrisvar héldum vér guðsþjónustusamkom-
ur, fyrst á heimili Jóns Austmanns, og síðan hjá Kristjáni
Jónssyni. 17. Janúar var austan-hríð með frosthörku, en
samt rýmdi Kristján íbúðarhús sitt og setti þar inn borð og
bekki til guðsþjónustunnar. Þann dag staðfestu unglingarnir
6 skírnarheitið, og um leið neyttu nokkrir kvöldmáltíðar-
sakramentisins, en eftir guðsþjónustuna bœttust tvær fjöl-
skyldur við söfnuðinn. — Síðan afhentu safnaðarfulltrúarnir
mér 33 dali til kirkjufélagsins.
Þótt Trínitatis-söfnuðr sé ungr og fámennr, þá gefr hann
góðar vonir um að verða þýðingarmikill liðr í kirkjufélaginu.
Því safnaðarfulltrúar og safnaðarlimir eru áhugamiklir kristnir
menn og skilja þýðingu félagsins.
Jón Austmann skilaði mér á járnbrautarstöðina í Glad-
stone, og hélt eg svo sem leið liggr til Winnipeg.
30. Janúar lagði eg aftr af stað, og ætlaði um West-
bourne til Manitoba-vatns, en á leiðinni hitti eg hr. Skúla
Sigfússon og bauð þaun mér keyrslu; þáði eg tilboð hans og