Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1904, Síða 19

Sameiningin - 01.03.1904, Síða 19
15 fór meö honum frá Reaburn til Mary Hill í Álftavatnsnýlendu. Eg fann aö máli ýmsa bœndr þar í nýlendunni, svo sem þá Sigfússonu, Jón Sigurðsson o. fl., dvaldi nokkra daga hjá Halldóri Halldórssyni í Lundum, en Páll Reykdal ók meö mig norör undir Siglunes við Manitoba-vatn. Allir tóku Álft- vetningar mér hlýlega, en ekki safnaöarmyndunar umleitun aö sama skapi. Þó eru það nokkrir og það atkvæðamenn, sem ávallt hafa viljað og vilja enn, aö söfnuör myndist og sé í kirkjufélagssambandinu, og meðal þeirra manna er séra Jón Jónsson, sem þar býr. Hvaö eftir annað hafa helztu menn byggöarinnar myndað söfnuð,en hann hefir jafn-harðan liðazt í sundr og sem stendr er þar enginn söfnuðr aö kalla; þó gjörir séra Jón Jónsson prestsverk fyrir menn eins og áðr, og al- menningr er vel ánœgðr með þau. — Þaö er hvorki almenn óánœgja viö kirkju né kristindóm, sem veldr hér erviðleikun- um, heldr öllu fremr þreyta og óhugr meðal forkólfanna af því að hver tilraunin eftir aðra skuli hafa oröið að engu. Það sannast hér sem annarsstaðar í ísl. nýlendunum, þar sem söfnuðir hafa myndazt án þess að ganga í kirkjufélagsheildina, aö þeir hafa hörmulega fljótt liðazt sundr. — Álftavatns- og Grunnavatns-byggöirnar eru þegar vaxnar saman, og munu nálægt 200 ísl. búendr vera á því svæði. Það væri því ekki all-lítið tjón fyrir vestr-ísl. þjóðflokkinn, að slíkr hópr væri fyrir utan það félag, sem mest og bezt hefir haldið og heldr honum saman. Eg hafði heitið því að heimsœkja Sigluness- og Narrows- Islendinga, en talsverðir erviöleikar voru á að komast þangað; hitti eg þá Pál Reykdal, og naut eg þess, að hann er jafn- fljótr til ráöa og dáða, því hann keyrði mig á gœðingi sínum norðr undir Siglunes. Þar hitti eg fyrstan hr. Jónas Kr. Jón- asson, og flutti hann mig norðr til Jörundar Eyford. Mœtt- uinst við séra Oddr V. Gíslason ,,í miöju trogi“. Var eg viö niessu hjá honum, en lét svo staðar numið, því séra Oddr tók að sér aö gjöra nauðsynlegustu prestsverk þar norðr frá, um tangana og í Bluff, jafnframt og hann liti eftir sjúklingum sínuin. Vegna firrðar bœja og fámennis er óhugsanlegt að mynda söfnuð um þessar slóöir, eða halda honum við, og var

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.