Sameiningin - 01.03.1904, Blaðsíða 20
i6
mér því vel utn vært aö geta hraöað feröinni til annarra
byggða, sem eg þarf að vitja. Jörundr Eyford fylgdi mér
suðr til Kinosota til þess eg næði í póstinn til Westbourne og
j>aðan til Winnipeg. Pétr ujáimSSon.
Frá Japan kemr frétt, sem af má ráöa, aö kristindómr-
inn er óðum að ná sér niðri í þjóðlífinu þar. Dagblað eitt
í borgnni Tokíó hét verðlaunum svo eða svo háum fyrir beztu
ljóð frumsamin, en efni ljóðanna skyldi höfundarnir sjálfir
velja. 600 kvæði voru blaðinu send, og öll höfðu þau kristi-
legar hugsanir inni .að halda. Þeir, sem verðlaunin hlutu,
voru átta að tölu, og það reyndist svo, þegar nöfn þeirra voru
athuguð, að þeir allir voru játendr kristinnar trúar.
—Akveðið er, að næsta ársþing kirkjufélagsins skuli byrja
24. Júní, á Jónsmessu. Fyrsti lúterski söfnuðr í Winnipeg
fær þann heiðr í þetta sinn að hafa kirkjuþingið hjá sér. Von-
anda, að hann geti innhýst það í hinni nýju kirkju sinni.
—Bandalag Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg var í boði
hjá bandalagi Selkirk-safnaðar að kvöldi þriðjudagsins í föstu-
inngang. Samsæti það uppbyggilegt og skemmtilegt.
■—Tíu fyrstu árgangar ,,Aldamóta“. verða hér eftir seldir
fyrir að eins hálft verð—25 cents hver. Fást hjá séra Frið-
rik J. Bergmann og í bókaverzlan Halldórs S. Bardal.
—Nýja testamentið ísl. frá brezka biblíufélaginu fæst til
kaups hjá ritst. ,,Sam. “ Verð 60 cts.
■—Gjöf í missíónarsjóð kirkjufél. frá Víkrsöfnuði $ro.
„VERÐI LjÓS!“— hið kirkjulega mánaðarrit þeirra séra Jóns Helgasonar
og Haralds Níelssonar í Reykjavík — til sölu í bókaverzlan Halldórs S. Bar-
dal í Winnipeg og kostar 60 cents um árið.
,,EIMREIÐIN“, eitt fjölbreyttasta og skemmtilegasta tímaritið á isl nzku.
Ritgjörðir, myndir, sögur, kvæði. Verð 40 cts. hvert hefti Fæst hjáeHall-
dóri S. Bardal íWÍDnipeg, Jónasi S. Bergmann á Garðar o. fl.
,,ISAFOLD“, lang-mesta blaðið á Islandi, kemr út tvisvar í viku allt árið;
kostar í Ameríku #1.50. Halldór S. Bardal í Winnipeg er útsölumaðr.
„SAMETNINGLN“ kenir út mánaðarlega, 12 númer á ári. Sunnudagsskólablaðið
,Kennarinn“ fylgir með „Sam." í hverjum mánuði. Ritstjóri ,,Kennarans“ er séra N. Stein-
grímr Þorláksson, West Selkirk, Man. Ártíangsverð beggja blaðanna að eins Si; greiðist
fyrirfrítm.—Skrifstofa ,.Sam.“: 704 Ross Ave., Winnipeg, Manitoba,Carjaóa.
Prentsmiðja Lögbergs. — Winnipeg.