Sameiningin - 01.06.1905, Síða 7
55
leyfum lesend.unum aö skeia úr því, hve merkilegir milliliö-
irnir hinir í breytiþróunar-keöjunni eru, ef þessi á að vera
n,erkilegastr.
Þessar tvær setningar, sem vér höfum tilfœrt, bera þess
ljósan vott, hve rnikiö er á bókinni að grceða f vísindalegu til-
liti. Vér getum því ekki séS, aö þaS sé nein ástœöa fyrir
íslenzku þjóöina aö fagna yfir því, að hún eignistslíkar ,,vís-
indalegar1* bœkr, sem ekki gjöra greinarmun á tilgátum og
því, sem er viðtekið og sannaö. Að ætla að hamra skoöanir
sínar inn í fólk meö því að slá því fram, að þær sé viðr-
kenndar af öllum vísindamönnum, þó þaö sé fjarri sanni, er
lööurmannleg aðferö. í því hafa íslenzku ,,hærri kritíkar“
mennirnir gengiö á undan. Er þvf ekki aö furða, þótt hinir
aðrir, setn rýra vilja gildi guös orös, noti sömu aöferðina. En
Þjóðvinafélagiö ætti aö hafa eitthvað þarfara fyrir stafni en
að koma slíkutn ritsmíöum fyrir almennings sjónir.
Hvaðá að gjöra lyrir œskulýðinn?
Fyrirlestr, sem séra FriSrik Hallgrímsson flutti
á kirkjuþingi 1904.
(Niðrlag )
Eu til þess að bandalögin geti sern bezt náð tilgangi sín-
um væri œskilegt, að ætti sér staö meiri s a m v i 11 n a milli
þeirra en nú er.
Vb'sir til slíkrar samvinnu eru bréfin, sem hafa gengið á
milli þeirra, og gjöra þau án efa nokkurt gagn; en þau eru
svo sem í ferðum, að gagnið af þeim verðr minna fyrir það.
Eg held, að það væri vert að íhuga, hvort ekki væri re^manda
að gefa út dáh'tið blað fyrir bandalögin, annaðhvort mánað-
arblað eða ársfjórðungsblað; það ætti að flytja ýmislegan
fróðleik um kristilegan ungmennafélagskap yfir höfuð að tala,
íréttir af bandalögunum, leiðbeiningar um ýmislegt þeirri
starfsemi viðvíkjandi, eins og t. d. bendingar um hentug
funaarefni, stuttar hugvekjur, smásögur o. fl.
Bandalögin ætti líka að geta haft einhverja samvinnu í
því, að lána hvort ööru góða fyrirlestra, sem fluttir hafa ver-