Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1905, Page 15

Sameiningin - 01.06.1905, Page 15
63 kapellan hans brennd, hús hans brotið niör og eigur hans, sem voru 150 þúsund dollara virðí, gjörðar aö engu. Hann bjargaði líti sínu meö því aö fiýja ásamt konu sinni til Lund- úna; íór hann þá ferö aö nætrlagi og komst í mestu krögg- ur. Áriö 1794 kom hann til Vestrheims; hafði hann þá eitt ár um sextugt, dvaldi þaö, er eftir var æfinnar í Northumber- land í Pennsylvaníu og andaöist 1804 án þess aö rætzt heföi draumar hans um nýlendu, þar sem frelsisþrá manna yröi fullnœgt, en um slíka nýlendu-stofnan var hann sterklega aö hugsa. Koma manns þessa til Ameríku myndi naumast hafa haft nein hin minnstu áhrif á trúarhugsanir manna hér í álfu, ef rit hans ekki hefði verið breidd út af þeim mönnurn, sem aðhyllzt höföu þá ýmiskonar afneitan, er lá í Únítara-kenn- ingurn hans. Árið 1785 19. Júní var af fólki því, er tilheyröi ,,Kon- ungs-kapellu“ í Boston, strikaö út úr tíðareglum þess safn- aðar sérhvað, sem beinlínis eða óbeinlínis benti á þrenningar- lærdóminn. 20 atkvæði voru með þeirri breyting, en 7 á móti. Haíði þetta uppátœki átt langan undirbúning. Svo sem kunnugt er var biskupakirkjan enska einskonar munaðar- leysingi í Ameríku á þeim tíma, er nýlendulýðrinn var að brjótast undan brezkum yfirráðum. Þar sem sú kirkjudeild var nefnd ,,Englands-kirkja“, þótti sennilegt, að hún væri Englendingum hlynnt, enda hurfu flestir prestar hennar aftr til Englands. I tvö ár meðan á stjórnarbyltingunni stóð var ,, Konungs-kapel!a“ prestlaus, og í fjögur ár var hún notuð af söfnuði ,,Suðr-kirkjunnar“, því það guðsþjónustuhús var þá haft fyrir hermannastöð. Þeir fáu safnaöarlimir ,,Konungs- kapellu“, sem eftir voru, kölluðu til sín í kennimannsem- bættið prestinn James Freeman, sem útskrifazt hafði frá Harvard-háskóla, og undir hans forustu lýsti söfnúðrinn yfir því, að hann væri Únítara-trúar. Meðal presta Kongregazí- ónalista voru ekki fáir, sem hölluðust í Únítara-átt. Ebenez- er Gay frá Hingham hefir verið nefndr ,,faðir Únítara-trúar- innar í Nýja Englandi“, en þeir kennimenn, setn mest höfðu áhrif á huga almennings í þá átt, voru þeir Charles Chauncey og Jonathan Mayhew. Og er sagt, að hinn síðarnefndi hafi veriö ,, fyrsti prestrinn í Nýja Englandi, sem með skýrum orð_

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.