Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1905, Síða 16

Sameiningin - 01.06.1905, Síða 16
64 um og opinberlega setti sig upp á móti kenning kirkjunnar um þrenniuguna“, ogkvaö svo mikiö aö því, aö hann í sama anda sem Celsus foröum leitaöist við að gjöra þá kenning hlœgilega. Þeir menn, sem mestan þátt áttu í því að grundvalla trá Unítara og síðan í því að losa um hana í hugum manna, vorir þeir William Ellery Channing og Theodore Parker. Chann- ing heyrði til fiokki þeirra manna, sem trúðu því, að ,,Jesús- væri meira en maðr, að hann hefði verið til frá eilifð, að hann heíði komið frá himnum til þess að frelsa mannkynið, að hanre sé enn starfandi að velferö vorri og sé talsmaðr vor hjá föð- urnum. “ En dr. Channing hélt sér ekki mjög lengi við- þessa íhaldsstefnu. Hann neitaði því, að Jesús væri guö, og skoraðist undan að veita honum þá tilbeiðslu, sem hann á til— kall til; og 1819 flutti nann prédikan, þegar Jared Sparks var prestvígðr í Baitimore, og talaði þá um það, hve óskynsarn- legr þrenningarlærdómrinn væri, setti sig á móti rétttrúnað- arkenningunni um friðþæginguna, sem hann frá siðferðislegn sjónarmiði taldi óhœfu, og fór hinum hörðustu orðum um það„ að Kristr hefði, eins og ávalit hefir kennt verið í kirkjunni, liðiö píslar sínar í stað syndugra manna og að réttlæti hans yrði þeim tiireiknað. Það var bergm1 hinna gömlu rök- semda, sem Porfyríus hafði komið með á 3. öld og Aríus á 4, öld. Prédikan hans um kærleik guðs óvirðir föður vorn á himnurn stórvægilega, því að undirstaða hennar ersúhugsan, að guð geti elskaö að eins þá, sem þess eru maklegir. Rœða. sú mótmæiir því dœmisögunni um hinn glataða son og gjör— vailri kenningarstefnu biblíunnar. Tilgangr þeirrar rœöu- virðist hafa verið það að fœra rök fyrir því, að maðrinn haft verðskuldaö kærleik og sé því ekki syndfallin vera, fremr en hitt, að mikia kærleik guðs, (Meira.) Hr. Ólafr S. Þorgeirsson, 678 Sherbrook St.., er féhirðir og ráðsmaðr ,,Sameiningarinnar. “ ,,EIMREIÐIN“, eitt fjölbreyttasta og skemmtilegasta tímaritið á íslenzku Ritgjörðir, myndir, sögur, kvæði. Verð 40 cts. hvert hefti- Fæst hjá Hall- dóri S. Bardal í Winnipeg, Jónasi S. Bergmann á Garðar o. fl. ,,ISAFOLD", eitt mesta blaðið á fslandi, kemr út tvisvar í viku allt árið; kostar í Ameríku íti.50. Flalldór S. Bardal í Winnipeg er útsölumaðr. .SAMEININGIN" kemr út mánaðarlega, 12 númer á ári. Sunnudags- skóiablaðið ,,Kennarinn‘‘ fylgir með ,,Sam.‘‘ í hverjum mánuði. Ritstjórí ,, Kennarans'‘ er séra N. Steingrímr Þorláksson, WestSelkirk, Man. Árgangs- verð beggja blaðanna að eins 81; greiðist fyrirfram. — Skrifstofa ,,Sam. ‘ ‘: 704 RossAve., Winnipeg, Manitoba, Canada.—Útgáfunefnd; Jón Bjarnasoníritst.), FriðrikJ. Bergmann, Óiafr S. Þorgeirsson, N. S. Þcrláksson, Pétr Hjálrusscn, Wilhelm H. Paulson, Halldór S. Bardal.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.