Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1959, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.03.1959, Blaðsíða 6
4 Sameiningin Höfum vér sótt fram yfir brúna samkvæmt boði Krists, eða höfum vér metið meira að reisa á henni fastan bústað heimslundar og efnishyggju? Höfum vér gengið til góðs götuna fram eftir veg? Vissulega er saga þjóðar vorrar mikil orðin, saga sigra og ósigra, sólskinsbletta í heiði og svartra helskýja. En þess er ekki að dyljast, að hún hefir áður fyrr orðið fyrir voðalegu hruni af völdum ofstopa og eigingirni, skammsýni og villu, og glatað frelsi sínu og sjálfstæði. Og nú loks, þegar það er aftur fengið og ytri velmegun og lífs- þægindi meiri en nokkru sinni áður, þá er hún í háska stödd sökum of lítillar trúar og siðgæðisskorts. Henni hefir gleymzt, að veröldin er aðeins brú, sem á að fara yfir. Hún vill reisa bústað á henni. Þessa heims gæði eru henni fremur mark en meðal og byrgja mörgum Guð og himininn. Sjónar- miðið er orðið jarðbundnara en fyr, svo að minnir á dæmi- söguna um ríka bóndann, sem batt hug sinn við kornhlöð- urnar og það að eta og drekka og vera glaður. Þröngsýni og sjálfselska sverfa að. í stað þess að spyrja: Hvað getum vér unnið fyrir ættjörð vora, er oftar spurt: Hvað getur ætt- jörðin gjört fyrir mig. Nei, vér megum ekki ætla oss þá dul, að vér getum leyst efnahagsvandamálin miklu, sem nú steðja að oss og eru sjálfskapavíti, án þess að vér viljum fórna einhverju fyrir þjóð vora. Eigum vér siðgæðisþroskann, sem til þess þarf? Það er aðeins eitt, sem fær bjargað þjóðinni — siðferði- leg endurnýjun, runnin frá kristilegri trú, lífsmagnan kristindómsins. Kristur sjálfur stendur nú við dyr nýja ársins og bendir þjóð vorri að sækja fram í sínu nafni að æðra marki, sem ber við himin. Hann býður enn í dag oss hið sama sem í öndverðu sinni kynslóð: Takið sinnaskiptum og trúið á fagnaðarboð- skapinn. Og svar vort á að verða það af allri sál, er vér munum syngja innan lítillar stundar:

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.