Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1959, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.03.1959, Blaðsíða 4
2 Sameiningin Sækjum fram (Prédikun dr. theol. Ásmundar Guðmundssonar biskups á nýársdag í Dómkirkju Reykjavíkur, lítið eitt stytt). JESÚS SAGÐI: Veröldin er brú, far yfir hana, en reis þér ekki bústað á henni. Við komu nýs árs erum vér minnt á flugstraum tímans. En hann skal ekki skelfast, því að ofar bárum hans blika eins og stjörnur eilíf orð Krists, og við nafn hans er árið kennt. Ég hefi valið í dag að hugleiðingarefni orð hans, sem varðveizt hafa, þótt ekki standi í Nýja testamentinu. Hafa nokkur fleiri slíkra orða, rituð á sefpappír, komið ósködd upp úr sandinum á Egyptalandi. Á dögum Jesú voru engar brýr á Gyðingalandi. En hann kom til byggða Týrusar, höfuðborgar Fönika, sem reis tignarleg eins og drottning úti á eyju skammt frá landi, og þar var brú í milli eða hafnargarður, mannvirki hið mesta. Þar norður frá hefir Jesús staðið með lærisveinum sínum og horft á umferðina: farþega skipanna og mikinn mannfjölda annan á hraðri göngu og stórar flutningalestir til borgarinnar eða frá henni, þúsundir af mörgum þjóðum, kynkvíslum og tungum. Hann virðir fyrir sér þetta líf, er streymir áfram enda- laust. Svona er veröldin, eins og brú, sem mannkynið þyrpist inn á og heldur eftir ár frá ári og öld af öld. Hann lítur til lærisveina sinna hvers og eins og bendir þeim: „Veröldin er brú. Far yfir hana. En reis þér ekki bústað á henni.“ Sækjið þannig fram. Enn í dag stendur Kristur við dyr nýja ársins og horfir á umferð miljónanna yfir brúna, hinn eilífi Guðs sonur, frelsari mannanna bæði þessa heims og annars. Hann bendir fram, hann sem dáinn er, og meira en það er upprisinn frá dauðum, hann sem er við hægri hönd Guðs, hann sem einnig biður fyrir oss, hann, sem mennirnir hafa ekki séð,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.