Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1959, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.03.1959, Blaðsíða 16
14 Sameiningin hetjur fyrri tíma, trúðu því að Kristur sé stoð vor og styrkur. Hvað höfum vér gjört til að breiða út fagnaðar- erindið um Jesúm Krist? Er nokkurt samband milli trúar vorrar hér og trúboðsstarfsins í Kína, Japan, Líberíu, eða Suður-Ameríku? Er nokkurt samband milli vorrar trúar og áhrifanna sem við höfum á vantrúaða vini okkar hér í Selkirk? Höfum vér átt þátt í því að einhver hefir gengið í söfnuð? Hvaða áhrif hefir trúarlíf vort á heimilis- og fjölskyldulíf vort? Kristna trúin á að rísa upp í þessar hæðir helgunar og þjónustu. Hin óforgengilegi sigurveigur verður hlutskipti vort, ef vér notum þá hæfileika sem Guð hefir gefið oss í einlægri þjónustu fyrir málstað hans. Vér finnum upp- sprettu þessarar sterku og ákveðnu trúar í guðsþjónustunni, þegar vér mætum Guði í sambæn og sakramenti, í prédikun orðsins, í sálmum kirkjunnar og lestri ritningarinnar. Þá erum vér hreinsaðir, helgaðir og oss er lyft í hærra veldi. Vér nærumst bókstaflega á kærleika Guðs, þetta gefur oss máttinn til að þreyta kapphlaupið, ekki í óvissu, og ekki eins og sá sem slær stöðug vindhögg. Kristna trúin er sá kraflur, sem gerir lífið þess virði að lifa því. Kraftur til- beiðslunnar tekur þann mátt, sem með oss býr og gefur honum tilgang og markmið. Hávaði hinna eyddu krafta og allskyns vanmegnunar hverfur er vér snúum tilætlunum vorum og hæfileikum í einlægri viðleitni til að gjöra Guðs vilja. Vel má það vera svo, að vér séum enn ekki mikils virði á heimsins vísu, og vér þurfum ef til vill að vinna fyrir einum tólfta af denar, en vér vitum samt, að fyrir augliti Guðs erum vér meira en denars virði, ef vér þjónum honum af öllu hjarta, huga og sál. Vér skulum því, kæru bræður, vera hughraustir og fylgja dæmi slíkra guðs þjóna sem Páls og Polycarps, Boenhoffers og Berggravs og þreyta þolgóðir skeið það, sem oss er fyrir sett, og beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar, til hans, sem í stað gleði þeirrar, sem hann átti kost á, leið þolinmóðlega á krossi, mat smán einskis, og hefir sezt til hægri handar hásæti Guðs. —(Heb. 12:2).

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.