Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1949, Page 9

Sameiningin - 01.04.1949, Page 9
SAMEININGIN 55 SUMARBÚÐIR Kftir UKS. pJÓÐBJÖRGU HINRIKSON Á síðasta þingi Bandalags Lúterskra Kvenna var ég beðin að gjörast fulltrúi þeirra til sumarbúða Lúterska kirkjufélagsins í Pennsylvania. Séra Egill Fáfnis, forseti Kirkjufélags vors, kom á þing og bar fram boð frá U.L.C.A. að senda erindreka eða fulltrúa til sumarbúða þeirra sem nefnist “Camp Nawakwa”, rúmar hundrað mílur fyrir vest- an Philidelphia, í Pennsylvania. Er sá skáli að áliti manna, sá allra fullkomnasti “Church Camp” innan U.L.C.A. Ætlun var að sá sem væri sendur, gæti verið í þessum sumarbúðum þriggja vikna tíma og gæfist tækifæri að skoða sig vel um og læra aðferðir í ýmsum greinum, svo hægt væri að flytja þann lærdóm til heimahaga, því B.L.K. er annt um að bæta og fullkomna, ár frá ári, aðferð og stjórn í sumarbúðum sínum. Ekki treysti ég mér til að útskýra til fulls hvað ég lærði þar. Ekki get ég heldur sagt um hvort nokkur annar getur haft fullt gagn af því sem ég sá þar. Ég get aðeins sagt frá, á einfaldan hátt því sem mér fanst mikilsvert og þýðingar- mikið. Eitt veit ég' að þær tvær vikur sem ég dvaldi í þess- um skóla verða mér ógleymanlegar, því þar sá ég að mikið má framkvæma þar sem ríkir eining, einbeittur viljakraftur og elska til Guðs. Camp Nawakwa er í skógarrjóðri, tólf mílur frá Gettys- burg, þar sem einn hinn hryllilegasti bardagi var háður milli suður og norður ríkjanna í þrælastríðinu, og þar sem þús- undir bræðra myrtu hvern annan. Camp Nawakwa er hundrað ekrur af háum skóg, með hólum og dölum og smá lækjum, mitt í frjósamri byggð og frá hæðstu hólum má sjá korn akra, alskonar aldingarða og smá þorp, fimm mílur til austurs. Á þeim tuttugu árum sem þessi “Camp” hefur starfað hefur mikið verið gjört af manna höndum — breiðir og sléttir keyrsluvegir, alskonar byggingar hér og þar innan um skóginn, — svefnskálar, borðstofa, lestrar salur, bóka- hlaða, skrifstofa, samkomuhús, baðhús (Showers) spítali og gosbrunnur. Rafurmagn og heitt og kalt vatn leitt inn

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.