Sameiningin - 01.06.1936, Side 9
99
hér er fult af öðrum dæmum. — Það er alveg satt; mér geng-
ur óskaplega stirt að láta breytni fylgja ltenningu. Hvernig
gengur þér það?
G. G.
Hvaðanæfa
Merkilegt líknarstarf stundar “Blóðgjafa-félag” svo kall-
að — Blood Donors’ Benevolent Society — í borginni St.
Louis suður í Missouri. Hvenær sem nauðsyn ltrefur, á nóttu
eða degi, eru félagsmenn reiðubúnir að veita blóð, bókstaf-
lega, sjúklingum þar í bænum, sem þess þurfa við en geta
ekki borgað. Hundrað og tíu meðlimir eru í félagi þessu,
ltarlar og konur hér um bil til helminga, frá sextán ára aldri
upp að sextugu. Félagið veitti hundrað níutíu og sex blóð-
gjafir árið sem leið — auðvitað endurgjaldslaust.
* * * *
Nálega fimm hundruð lýðháskólanemendur í Filadelfíu
voru beðnir um daginn að skrifa niður “faðir-vor” eftir
minni, fyrirvaralaust. Þeir voru flestir frá kristnum heim-
ilum, höfðu gengið á sunnudagsskóla og auk þess heyrt bæn-
ina lesna í alþýðuskólunum á hverjum degi. Þó gat ekki
nema tæpur helmingur hal't hana rétta; og mörgum fataðist
óskaplega.
* * *
Stéttleysingjar á Indlandi hafa búið við hræðileg ókjör
og niðurlægingu á meðal trúbræðra sinna kynslóð fram af
kynslóð, eins og kunnugt er. Nú eru þeir farnir að tala urn
að yfirgefa hindúismann í stórhópum. Sumir leiðtogarnir
vilja bíða við í nokkur ár og kynna sér önnur trúarbrögð sem
allra bezt áður en þeir skifta um. Aðrir hafa við orð að
ganga rakleiðis í biskupakirkjuna ensku og “hafa sömu trú
eins og konungurinn.” Það er illa farið, ef kirkjan græðir
ekkert á þessari hreyfingu.
★ ★ ★
“Væri eg kristinn maður,” segir Gyðingurinn Philip S.
Bernstein, “þá mundi mér finnast einn hlutur varða mestu,
bæði fyrir eigið líf mitt og í öllum gangi sögunnar. Það er
persónugildi Jesú frá Nazaret. Sál hans var ósegjanlega fög-
ur. Hann gat talað svo við smábörnin, að þau virtu hann og
elskuðu, og þó bjó hann yfir dýpstu speki aldanna. Hann