Sameiningin - 01.06.1936, Blaðsíða 14
104
til, sem við hefðum alls fengið um 800 áheyrendur í ferð
okkar, og er það tæpur helmingur fólksins í prófastsdæminu.
Þóttu okkur það góðar viðtökur, og jafnvel enn betri en við
höfðum þorað að vona, virka daga um hásláttinn. Þjóðin
er vissulega ekki fráhverf andlegum málum. Þeir sem því
halda fram þekkja hana ekki. Og því meir sem henni er
treyst í þeim efnum, því síður mun hún l)regðast. Þessi ferð
var mér ein sönnun þess. Nú eru akrarnir hvítir til upp-
skeru. Og verkamennirnir mega ekki vera vantrúaðir, heldur
trúaðir. Ekkert er að óttast. Þegar æskan í landinu sér,
að okkur fullorðna fólkinu er kristindómurinn heilagt alvöru-
mál, þá starfar hún með og verður okkur fremri. Svo mik-
inn skilning og samúð fann eg í ferðinni og svo glöggan vott
þess, að mæðurnar eru enn sem fyr æðstu prestar kristninnar
í landinu, að eg tel þessa daga með þeim beztu, sem eg hefi
Iifað. Það sama, hygg eg, að eg megi segja um samferða-
mann minn.”
Þetta er fagur vitnisburður og ekki sízt vegna þess, að
ekki er kastað hnútum í einn til að upphefja annan. Eldri
sem yngri njóta sannmælis.
Árið 1928 huðu ung hjón sig fram, Mr. og Mrs. Fugla-
stad, til trúboðsstarfs í Súdan í Afríku. Þau höfðu starfað
þar aðeins nokkra mánuði þegar Mr. Fuglastad tók hitaveik-
ina og dó. Þau hjónin voru einu hvítu manneskjurnar þar
á stóru svæði. Mrs. Fuglastad varð ein að hjúkra manni sín-
um í legu hans og jarða hann þegar hann dó. Þegar lát hans
barst til trúboðsfélagsins sem sendi þau, buðu sig þegar í stað
fram önnur ung hjón, að taka upp starf hins látna. Þau
voru Mr. og Mrs. Odin Erickson frá Conrad, Montana. Þau
hafa nú starfað í Súdan í fimm ár. f haust sigldu þau aftur
til Súdan eftir nokkra hvíld i heimahögum sínum. En þegar
þau fóru, skildu þau bæði börnin sín el'tir, dreng fjögra ára
og annan rúmlega árs gamlan, og sem þau sjá ekki í næstu
þrjú ár.
Þetta er ungt fólk sem fórnar öllu, jafnvel lífi sínu, fyrir
málefni frelsarans. Og eg trúi að þegar unga fólkið hefir
komið auga á frelsara sinn, og fundið köllun sína í lífinu,
að þá sé það, nú sem áður, viljugt að fórna öllu, jafnvel lífi
sinu, til að gegna skyldu sinni.
Áreiðanlega á unga fólkið leiðtoga sín á meðal sem
gæddir eru hæfileikum, trú, og þreki sem sigrar allar þrautir.
Treystum unga fólkinu.