Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1939, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.01.1939, Qupperneq 16
14 postuli kallar sjálfan sig í senn bandingja og frelsingja í Kristi. Trúarbrögðin eru mörgu fólki aðeins skyldukvöð. Sam- band þess og guðs er því þvingunarsamband. Það hefir aldrei fundið til neins sonar-sambands við Guð. Ef því fólki gæti lærst að venda því þvingunarsambandi í skilyrðis- lausa föður-viðurkenning, þá breyttist öll útsýn og aðstaða. Skyldukvöðum trúmálanna yrði þá ekki mætt með eftir- tölum, eða af þvingunar kend, heldur af fúsleik og með gleði út af því að hafa fundið nýtt samband — nýja föður- vernd. Meistarinn leggur í öllum sínum kenningum áherzl- una á hið innra trúarlíf. Hvað mennirnir eru í raun og sannleika skiftir meiru heldur en það hvað þeir gjöra. Athafnir manna geta verið óaðfinnanlegar á yfirborðinu, en það sem varðar eru hvatirnar, sem verkunum ráða. Sökum þess, að lcristninnar Guð er faðir fremur en löggjafi, þá ber að skilja trúarbrögðin frá sjónarmiði sonar-sambandsins, en ekki frá sjónarmiði löggjafans, og það var þessvegna, að Kristur fyrirskipaði ekki neinar fastbundnar lag'areglur mönnunum til leiðbeiningar, heldur gaf þeim megin-undir- stöðuatriði til tryggingar lífi þeirra. Þær lífsreglur, eða réttara sagt, þau undirstöðu atriði áttu menn að tileinka sér, ekki sem utanaðkomandi valdboð, er krefðist skilyrðis- lausrar hlýðni, heldur með skilningssambandi andans —- hins innra manns — og vaxandi sálarsjón. SANNAR DYGÐIR Ef að menn fengjust til þess að tileinka sér þessar meginreglur, þá mundi þeim smátt og smátt skiljast hversu mikill hinn andlegi þroskamáttur þeirra er, og hversu mátt- ugt afl þær eru til þroskunar mannlegra dygða. Guðs barna frelsið mundi verða þeim Ijóst og ljúft, ef þeir í einlægni tækju á móti og tileinkuðu sér bendingar föðursins. Innan frá og út á við var ófrávíkjanleg regla Krists: Ef hjarta- lag mannanna breytist, þá breytist og öll aðstaða þeirra í lífinu. Maðurinn er meira en umhverfi hans. Með engu möti má hann láta það ráða yfir sér, heldur á hann að taka í þjónustu sína það nothæfasta, sem það hefir að bjóða. Kristilegt frjálslyndi er því fólgið í trúmensku sonarins, sem fundið hefir hið innra og eðlilega hlýðnissamband við föðurinn — hin ævarandi lög síns innri manns. Hefir nokkur maður verið frjálsari en Kristur sjálfur var? Hann haltraði hvorki né hikaði, heldur gekk djarf-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.