Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1939, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.02.1939, Blaðsíða 3
^anu'tningin, ;tíánaðarrit til stuffnings kirkju og kristindómi íslendinga. gefiff út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi Ritstjórar: Séra Kristinn K. Olafson, 3047 W. 72 St., Seattle, Wash., U.S.A. Séra Guttormur Guttormsson, Minneota, Minn., U.S.A. Séra Rúnólfur Marteinsson, 49 3 Lipton St., Winnipeg. Féhirðir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. 54. ÁRG. WINNIPEG, FEBRÚAR, 1939 Nr. 2 Frá eilífð til eilífðar “Frá eilífð til eilífðar ert þú Guð.” D.S. 90:2. Mér finst þetta vera hin stórkostlegasta staðhæfing sem til er á máli mannanna. Þetta er fja.ll, sem gnæfir yfir alla tinda mannlegrar hugsunar. Hversu hátt sem hún nær, verður þetta samt hærra: frá eilífð til eilífðar ert þú Guð. Sá, sem er sannfærður um þetta finsl mér geti horfst í augu við alt. Auðvitað á eg ekki við að maðurinn aðeins kannist við að þetta sé rétt heldur að þetta sé honum sann- færing og að hann lifi alt sitt líf í ljósi þessa sannleika. Sá maður hefir kraft í sjálfum sér sem er sterkari en alt sem á móti sækir. Ekki skilst mér að sá maður væri undanþeginn mis- fellum hins jarðneska lífs, fremur en aðrir menn, ekki heldur að hann hefði öryggistrygging gegn þvi að sárin sviðu; en misfellurnar gætu aldrei sýnst honum eins stórar eins og Guð. Alt líf lians mundi vitna: Þótt neyðin sé stór er náðin stærri. “Frá eilíf til eilífðar ert þú Guð.” Eg staðnæmist við orðið ert. Það er ekki varst eða verður, heldur ert. “í gær og í dag og að eilífu ert þú hið sama, óumbreytanlega líf. Hvílík mótsetning við hina jarðnesku tilveru. Aflið sem

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.