Sameiningin - 01.02.1939, Síða 4
18
sltapar er óumbreytanlegt og eilít't; en það sem skapað er
er á sífeldri rás breytinga.
“Alt breytist, rotnar, þreytist, þrotnar hér.
Æ, þú sem aldrei breytist vert hjá mér.”
Guð er hið eilíi'a er. Þar í er fólgin huggun hins jarðneska.
Hið dauðlega hallar sér upp að brjósti hins ódauðlega og
hið forgengilega að hinu óforgengilega. Jarðarbarnið hallar
sér að barmi eilífa föðursins. Vínviðurinn fléttar sig upp
stóru eikina. Mér skilst, að án þessa stuðnings sé ómögu-
legt fyrir mannlífið að vera farsælt; að hér sé grundvallar-
atriði, sem með engu móti geti raskast. “í Guði lifum,
hrærumst og erum vér.” Þar er líf vort alt og öll vor far-
sæld. “Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan
að og kemur niður frá föður ljósanna, en hjá honum er
hvorki umbreyting né umbreytingarskuggi.” (Jak. 1:17).
Svo hetd eg áfram í setningunni: ert þá Guð. Jesús
sagði: “enginn er góður nema Guð einn. Guð er algæzkan
eilífa. “Elskan er al-lífsins rót.” Komið hefir það fyrir,
að menn hafa sagt: Guð er vondur. Sú hugsun er sjúk-
dómur. Andlega heilbrigt ástand segir það aldrei. Frá
eilífð til eilífðar ert þú góður. Guð og gæðin geta ekki
skilið. Ef Guð væri ekki góður þá væri hann ekki Guð.
Staðhæfingin þessi: “Frá eilífð til eilífðar ert þú Guð”
merkir það, að æðsta afl tilverunnar sé gott, að miðstöð
eilífðarinnar sé velvild. Guð er kærleikur. Engin mót-
sögn er til í hjarta algæzkunnar.
Á röksemdaleiðinni sjáum vér að þetta getur ekki öðru-
vísi verið. Til er samt leið, sem flytur oss sama sannleik-
ann með miklu meiri yl. Sú leið er Jesús Kristur. Hann
sagðist sjálfur vera “vegurinn, sannleikurinn og lifið.” Hann
birtir Guð á jörð á þann hátt, sem allir gátu skilið. Hann
gekk um kring og gjörði gott. Hann er “Ijómi Guðs dýrðar
og ímynd hans veru,” en flutti þetta inn í mannlífið með
þeim einfaldleik, að jafnvel börnin fundu til nálægðar Guðs.
Mannlegt sálarlíf ljómar enn af fögnuði hvar og hvenær
sem hann er valinn sem vegurinn að hinu eilífa föðurhjarta.
“Hvað þú, minn Guð, ert góður
þú gafst mér Jesúm Krist,
minn hjartans bezta bróður.
Hann barn var líka fyrst.
Sem börn og viljurn vér