Sameiningin - 01.02.1939, Síða 15
29
þeir 03,500,000, að ótöldum smákirkjuflokkum.
Árið 1880 töldust safnaðarlimir 19 af hundraði; nú
í eru þeir 59 af hundraði.
Guðsþjónustuhús eru 246,000. Telzt mönnum að um
tuttugu miljónir manna komi saman til guðsþjónustu í
hverri viku.
Tala þeirra, sem ganga í söfnuð eykst með hverju ári:
um 19 af hundraði gengu í söfnuð 1880, en 59 af hnndraði
innrituðu sig á liðnu ári.
Feigðarspár manna virðast ekki ætla að rætast að svo
komnu. Kirkjunni vex fiskur um hrygg ár frá ári.
Meðlimir lútersku kirkjunnar teljast 4,589,660; er hún
fjórða kirkjudeildin í röðinni að fólksfjölda. Jukust henni
meiri meðlimafjöldi hlutfallslega á liðnum fimtíu árum en
nokkurri hinna stærri deihla.
Af Iúterskum félagsheildum telur United Lutheran
Ghnrch of America (U.L.C.A.) flesta meðlimi, eða 1,523,022.
Næst kemur Missouri Synodan með 1,219,935 meðlimi.
Prestar tilheyrandi U.L.C.A. eru að tölu 3,307 og kirkj-
ur 3,718. Meðlimum U.L.C.A. fjölgaði um 63,657 á síðast-
liðnum árum.
E1 N S T E I N
Gyðingurinn heimsfrægi, Albert Einstein, sem rækur
var gjörður úr Þýzkalandi hefir sagt, að hann hafi orðið
forviða á því að kristin kirkja virtist vera eini vinurinn
sem þjóðin hans átti. Nýlega fórust honum orð á þessa
leið: “Áður fanst mér lítils vert um kirkjuna. Nú elska
eg hana og dáist að henni, því kirkjan virðist eina aflið, sem
hefir hugrekki og staðfestu til að styðja skynsamlega
ályktun og siðferðilegt frjálsræði. Eg má til að játa, að það
sem eg eitt sinn forsmáði tel eg nú aðdáunarvert.”
FRÁ NORÐUR-DAKOTA
Á ársfundi safnaðanna í prestakalli séra H. Sigmar, nú
eftir síðustu áramót, lagði presturinn fram eftirfarandi
skýrslu um störfin í prestakallinu öllu árið 1938:
guðsþjónustur .....................108
altarisgöngur 325
skirnir ........................... 37
fermdir ............................ 65
hjónavígslur ...................... 15
greftranir .........................30
l