Sameiningin - 01.03.1943, Síða 8
38
fullkomnasta orðið sem hann hefir við oss talað, er til vor
komið fyrir Jesúm Krist. Þess vegna ber oss að hlýða
sérhverju orði hans. Hvað stoðar það að tala við dauðvona
menn um mannfélagslega umbótastarfsemi? Hver mundi
láta sér til hugar koma að tala við líkbörur framliðinna
um jafnaðarmensku, auðvaldsskipulag og ágalla þess? Eða
eiga lífsreglur og stefnuskrá stjórnmálaflokkanna að koma
í staðinn fyrir boðorðin tíu og bæn Drottins í uppfræðslu
hinna ungu? Nei, vér þurfum á sérhverju orði Krists að
halda. Vér megum ekkert orða hans vanrækja, sízt þau er
snerta hinn andlega og eilíflega tilgang mannlegs lífs. Orð
hans ná yfir alt sem er hugsað á jörðu; hann lætur sér
ekkert mannlegt óviðkomandi, og það gjörir kirkja hans
ekki heldur. Sérhvert orð sem Kristur mælti á brýnt erindi
til vor. Vér heyrum hann tala máli guðstrausisins. Þegar
hann þjáðist af hungri í eyðimörkinni, neitaði hann að
víkja af Guðs vegum, eða rísa með ofbeldi gegn þeirri
ráðstöfun sem hann vissi sér fyrir setta. Hann hafnaði
þeirri freisting að nota guðdómlegan mátt sinn til að auka
sín eigin þægindi, því þá hefði hann afsalað sér þeim for-
réttindum sem hann var fæddur til; að vera frelsari mann-
anna frá synd og duaða. Hann talar máli hins eilífa mann-
gildis, og sjálfur er hann í dásamlegum eiginleikum sínum,
persónu, kenningum og dæmi, talandi vottur hins háa mats
sem á manninn er sett af Guði föður. Hann veit að mann-
kynið er sjúkt til dauða, og að hvorki efnishyggja, mann-
úðarstefnan ein sér, lögregludómar né nokkurt ytra vald-
boð, koma nærri því að lækna þá meinsemd. Honum er það
ekki nóg að skera utanfrá í þá hræðilegu ígerð sem æxlast
hefir á líkama mannlegs skipulags, og eitrað hefir líf mann-
anna. Hann, hinn mikli mannþekkjari veit að í hjartanu
eru uppsprettur lífsins. Þess vegna miðar alt starf hans að
því að hreinsa blóðstrauminn, helga hjartað. Þessu verður
ekki til vegar komið með valdboði, mannfélagslegum um-
brotum, eða kollvörpun einhvers skipulags til þess að
koma einhverju öðru skipulagi að. Þess vegna hefir hann
kosið þá leið fyrir kirkju sína að hún skuli koma fram í
hlutverki saltsins sem verndar, og súrdeigsins sem hægfara
breiðist út. Þannig aðeins verður kirkja hans reist á traust-
um grunni, og guðsríki staðfest í hjörtum frjálsra manna.
Orð hans til hvers manns er þetta: Guð elskar þig, þú ert
eilíf vera, sköpuð í hans mynd. Líkama þinn átt þú að
varðveita meðan varir, því að hann er eitt af híbýlum