Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1943, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.03.1943, Qupperneq 16
46 náð augnamiðum vorum, en hann sýnir oss hver augna- miðin ættu að vera, og það ætti fyrst að vera útkljáð. Hann segir oss að stefna að þeim lífsástæðum sem þroska hverja manneskju og hæfileika þá, sem Guð hefir gefið hverjum einum, í sem víðtækustu og fylstu samfélagi og unt er. Það er hið almenna augnamið, sem allir flokkar ættu að stefna að eftir þeirri leið, sem þeir álíta bezta. En ef kristnar hugsjónir eiga að ráða, verður þetta að vaka fyrir og vera mælikvarði á heilbrigði hverrar tillögu.” K. K. Ó. NÝÁRSDAGUR. Lag: "Hver sem ljúfan Guð lætur ráða". Nú roðar fyrir nýjum degi hér nemur staðar hugur minn. í andans lotning höfuð hneigi, oss heilsar nýársdagurinn. Frá konung lífsins kominn er að kalla oss í fylgd með sér. Guð þekkir upphaf alls og endir sem öllu takmörk hefir sett. Hann áminning oss einnig sendir að elska sig og breyta rétt. Að deyða mann ei megum vér af miskun Guðs það bannað er. Nú falla þúsund þúsundanna mót þínum vilja, faðir minn. að fyrirlagi foringjanna, er fótum troða boðskap þinn. Saklausra blóði úthelt er, allur réttur úr skorðum fer. Þeir berast fram á banaspjótum og blóði drifin jörðin er, það heyrast kvein frá hjartans rótum um heiminn grimdaræði fer. Frá vítis eldi veraldar er verða kann til hreinsunar. Vegur andans. Guðs alvæpni er öllu ofar og inst í kristnum sálarreit. Sú lífsins hersveit herrann lofar

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.