Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1943, Síða 3

Sameiningin - 01.04.1943, Síða 3
H>ametmngm Alánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi Islendinga gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi Isl. i Vesturheimi. 58. ÁRG. WINNIPEG, APRÍL 1943 Nr. 4. Páskasálmur Jesús uppreis — Eg hann lofa Jesús lifir hæðum á. Eigi megum synd í sofa Sonur Guðs er mildin há Fórn á köldum kross hann leið Kennarinn æðsti í lífi og deyð Og' hans tæru táralyndir Tóku burtu heimsins syndir. Jesús uppreis — Eg hann prísa Jesús lifir hæðum á Allan heiminn upp nam lýsa Okkur veittist blessun há Heilagur á himni’ og jörð Honum syngjum þakkar gjörð Hann leið alt með hógværð sinni . Hjartað þó af kvölum brynni. Frelsarinn okkar frægur lifir Fagurt lofa skulum hann Heim og dauða hafinn yfir Heilagan brýndi sannleikann Gekk í kring og græddi öll mein Guðdómskraftur fagur skein Þúsund falda þökk skal færa Þrí-einum Guði lof og æra. Höfundur þessa sálms er Margrét Sigurðson frá Hlíð á Vatnsnesi. Hún dó 25. júlí 1939, 77 ára gömul. Skömmu áður las hún mér þenna sálm, var hún þá mjög farin að heilsu og nærri blind. V. J. E.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.