Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1943, Page 4

Sameiningin - 01.04.1943, Page 4
50 Fjallræðan og mannlegt líf Fjallræðan er almennt dáð sem tilkomumikið hugsjóna mál. Hinn látlausi einfaldleiki töfrar hugann og vekur þá meðvitund hjá þeim, er einhvern næmleika eiga fyrir feg- urð hugsunar og máls, að dýpri og víðtækari sjón á lífinu blasi hér við en er að finna í ýmsri flækjuspeki þeirra er mæla fremur af myndugleik en djúpsæi. En samfara því að vekja slíka aðdáun er Fjallræðan ósjaldan talin utan eða ofanvið veruleika lífsins og lítið til þess lagin að beina braut innan um vandkvæði og vandamál þau er þrengja að flestum á alla vegu. Hún verður mönnum þannig oft fullkomin andstæða við raunveruleik lífsins. Á vegum lífs- ins er svo mikið af harðneskju og vægðarleysi, en oft minna af samúð og umburðarlyndi. Þar gnæfir við himinn ákaflyndi græðgi og sérgæða, en sá fótumtroðinn og undir- okaður, sem minna má sín. Þar virðist lögmálið svo gjarn- an vera að hver sé sjálfum sér næstur, en að aðrir og annað verði að reka á reiðanum eftir því sem verkast vill. Innan um þetta hljóma orð Fjallræðunnar í margra eyrum sem ömurleg kaldhæðni g’agnvart ástæðum lífsins og fram- ferði mannanna. Þar er siðferðileg fullkomnun teiknuð í skýrum dráttum, grundvölluð á hreinleik hjartans og hugar- farsins, samfara hungri og þorsta eftir réttlætinu, miðuð ekki við lágmarkskröfur lögmáls heldur við hið æðsta og mesta, sem kærleikur til Guðs og manna getur tendrað. Engin furða að þetta blasir við sem andstæða við raun- veruleik lífsins í samtíð vorri — eins og það hefir áður gert gagnvart ástæðum er þá hafa verið ríkjandi. En þrátt fyrir þessa andstæðu milli lífsins og hug- sjóna Fjallræðunnar, hefir einkennilegur sjálfsönnunar- kraftur fylgt orðum hennar fyr og seinna. Hvað mjög sem á hefir vantað að eftir henni væri farið, hefir hún vakið þá meðvitund, sem kynslóð eftir kynslóð hefir reynst erfitt að hrinda af sér, að hún sýni þann veg lífsins er mennirnir þyrftu og ættu að feta. Þrátt fyrir allan veikleika mann- legs eðlis vekur Fjallræðan bergmál Guðs anda og áhrifa í samvizkum mannanna. Hún birtir einkenni hins sanna og fullkomna manns, sem hefir fyrir augum Guðs tilgang í lífinu og velferð mannanna — en það fer ætíð saman. Og þó einkennilegt megi virðast þeim er finst Fjallræðan flytja

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.