Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1943, Side 10

Sameiningin - 01.04.1943, Side 10
56 þá liggur sára lítið sem hægt er að byggja á í þeim efnum. Nokkrar sögur eru þó til sem lifað hafa í minni og á tungu núlifandi Eskimóa. Ein þeirra hljóðar svo: Iunnita-hjón ein, þau síðustu sem sögur fara af, bjuggu í Heborn á Labrador. Maðurinn var mikill vexti og ramm- ur að afli, svo að Eskimóum stóð stuggur af honum. Hann var værukær og tregur til fanga og sat oft heima hjá sér, er Eskimóar fóru til veiða, en tók svo með valdi það sem hann þurfti af veiði þeirra er þeir komu heim. Eskimóar þoldu yfirgang hans um hríð, en þar kom að þeim ofbauð og tóku þeir þá ráð sín saman um það, hvernig þeir gætu losnað undan. áþján þessari. Að semja við Iunnitann töldu þeir þýðingarlaust, svo þeir fundu upp á því ráði að ginna hann í burtu frá heimili sínu og setjast að honu.m nógu margir til þess að geta ráðið hann af dögum. Vissir menn voru valdir til að tala við hann. Tók Iunnitinn máli þeirra mjög seinlega, kvaðst ekkert vilja undir þeim eiga og ekkert fara út af heimili sínu. Eskimóar bentu honum á að sjálfs sín vegna ætti hann og yrði að breyta um hætti, þá bakaði hann sér ekki aðeins fyrirlitning og óvild allra, heldur myndu menn álíta, að hann væri magnlaust ómenni. sem hvorki hefði þrek né þrótt til að bera sig eftir björg sinni á ærlegan hátt. Að síðustu lét Iunnitinn tilleiðast að fara á veiðar með þeim. Fóru þeir þá á veiðistaðinn og tjölduðu þar því dagur var að kvöldi kominn. Um nóttina réðust tíu Eskimóar á Iunnitann og áður en þeir fengu ráðið hann af dögum varð hann banamaður þeirra fjögra. Það er ekki ólíklegt að munnmælasögur Eskimóa séu ýktar að meira eða minna leyti, en eitt er víst, að það er alment álit Eskimóanna á Baffin-eyjunni að Iunnitarnir hafi verið afburðamenn að burðum. Eftir þeim gögnum að dæma sem fyrir hendi eru, þá hafa Iunnitarnir verið síður að andlegu atgerfi búnir en líkamlegu. Það hefir þegar verið bent á kæruleysi þeirra og smekkleysi í klæðaburði. Ennfremur sína leyfar, sem fundist hafa í bæjarrústum þeirra, að þeim hefir verið ósýnna um vopnagjörð og hugvit, en núlifandi Eskimóum. En í einu hafa þeir skarað langt fram úr því sem fólk það er nú byggir norður-héruð Canada og eylendur, geta sýnt og það er í húsagerð. Húsakynni þeirra hafa verið algjörlega frábrugðin allra annara manna flokka, sem þekt- ir eru, og byggt hafa þessi héruð. Fyrst í því að lunnnarmr haia átt varanleg heimili,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.