Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1943, Síða 13

Sameiningin - 01.04.1943, Síða 13
59 sett fram til þess að láta það eitthvað heita, því við ofur- litla athugun er það augljóst, að slíkt er með öllu óhugsan- legt. Hvernig á maður að gera sér grein fyrir afmenningu íslendinganna frá Grænlandi í mynd og máli á.niðurgýngu þeirra frá því menningarstigi, er þeir stóðu á á Græniandi og ofan til Iunnítanna, án þess að eitt einasta spor sé sjáanlegt á allri þeirri afturfararleið? Svo er annað að það er vitanlegt að bæði Iunnitarnir og Eskimóarnir þektu til íslendinga á Grænlandi eins snemma og árið 1262 og í máli Eskimóa bera þeir sérstakt nafn, nafnið “Kablúnaít” (hvítu mennirnir). En það, að Iunnítarnir og Eskimóarnir skildu hvers annars mál — töluðu að miklu, eða mestu leyti sama málið bendir sterklega til sameiginlegs uppruna. Meira. ' Slíkur er þinn arfur i » í smábæ einum í Júgóslavíu hjó maður sem Pétur hét. Hann var bókhneigður og tók allmikinn þátt í stiórn- málum. Hann var kvæntur ungri konu, sem hét María. Þegar María var komin langt á leið að fyrsta barni þeirra hjóna námu Þjóðverjar bæinn sem þau bjuggu í herskyldi og þar með heimili þeirra hjóna og dálitla verzl- un er Pétur veitti forustu og þau áttu. Pétur komst. úr greipum ránsmannanna og leitaði á mörkina þar sem ætt- jarðarvinirnir söfnuðust saman til varnar. Skömmu síðar varð Pétur fyrir skoti frá óvinunum, en áður en hann dó vanst honum tími til að ná ritblíi úr vasa sínum og rita bréf til sonar síns sem enn var ekki fæddur. Félagar Péturs fundu lík hans og bréfið sem var ólokað. Bréfið gekk mann frá manni, því þegar það fanst voru engin tök á að koma því til skila og varð alsherjar herhvöt á meðal þeirra er það lásu. Ekki er óhugsandi að bréfið hafi tekið nokkrum breyt- ingum að því er stíl og orðfæri snertir á meðan að það gekk manna á milli, en boðskapur þess var eins sannur, þegar höfundur þess reit það undir laufþyt trjánna, eins og hann var þegar það barst til London og var opinberað heimi öllum. “Barnið mitt, sem sefur enn undir brjóstum móður þinnar og ert að safna kröftum til fæðingahríðanna. Eg

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.