Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1943, Síða 14

Sameiningin - 01.04.1943, Síða 14
60 óska að þú megir njóta blessunar og hamingju. Enn hefir þú ekki öðlast fullkomna mynd, né heldur getur þú andað eða séð, en þegar tími þinn kemur og hennar móður þinn- ar, sem eg elska innilega, þá verður þér gefið eitthvað það, er veitir þér styrk til að berjast fyrir ljósi og lífi. Slíkt er arfur þinn, slíkt er hlutskifti barns, sem af konu er fætt — að berjast fyrir lífinu og halda í horfi án þess að vita hvers vegna. Megi ljós vonarinnar, sem vermir og temprar æsku þína aldrei deyja, eða dvína, heldur lifa og lýsa lífið út, svo að þegar dagsverkinu er lokið og dag- arnir löngu liðnir, að þá megir þú enn, vera eins og ljósker vökumannsins við enda afskekkts vegar — elskaður og virt- ur fyrir birtu þá er þú í auðmýkt stráðir á veg allra góðra vegfarenda sem þrá í myrkri ljós, og í kulda yl. Þrá til þekkingar, æfintýra og ódauðleika, meðvitund verður þér í skaut lagt barnið mitt. Legðu alla stund á að varðveita það með það leiðarljós í hjarta, sem leitar gulls- ins hinumegin regnbogans, haglendisins græna hinumegin eyðimerkurinnar, dagrenningarinnar hinumegin sjávarins, og Ijóssins fyrir handan myrkrið. Eg vona að þú megir leita og stríða af einlægni i heimi þessum, sem reynir og þreytir svo mjög þrek mann- anna og með óbilandi hugrekki. Vertu staðfastur í trú þinni, en láttu dómgreind þína vaka yfir hverju að þú trúir. Vak þú yfir móttöku þroska þíns, en tileinkaðu þér það eina, sem dómgreind þín segir þér að sé rétt. Varðveittu lífsþrá þína, en útiloka hræðslu við dauðann úr huga þér. Lífsgleðina verður þú að varðveita annars fær líf þitt ekki notið sín, þó má lífselskan aldrei úr hófi ganga. Varðveittu vinargleði þína; lærðu aðeins að þekkja þá sem þú velur þér fyrir vini. Gæt skapferlis þíns; varðveittu andúð þína aðeins til •þess að mótmæla því sem dómgreind þín segir þér að sé rangt. Varðveittu aðdáun þína fyrir því sem fagurt er og' undursamlegt, svo sem ljósi sálarinnar og þrumum lofts- ins, regni sumarsins og stjörnum himinsins, vindi og sjó, vexti trjánna uppskeru jarðarinnar og mikilleik víkings- lundarinnar. Varðveittu fróðleiksþroska þinn; gleymdu ekki að hata lýgina, og glataðu ekki hæfileikanum til að fyrirlíta ódreng-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.