Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1943, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.04.1943, Blaðsíða 16
62 tækifæri að inna af hendi þjónustu er eg hefði skilyrði til og að starfið hefði þýðingu bæði fyrir ríki og kirkju, án þess ríkið skifti sér af málum kirkjunnar að öðru leyti en því að vernda frjáls og óhindruð tækifæri fyrir við- leitni hennar að efla andlegt heilbrigði og þroska. Vegna þess að um trúnaðarstarí er að ræða, er mér ekki heimilt að gera frekari grein fyrir því. Eg hóf starfið 8. febrúar. Síðan hefi eg fullnægt þremur prófum til viðbótar skilyrða við viðfangsefnin. Hefi eg notið mín vel að þessu í stöðunni. Hún varir að öllu for- fallalausu meðan ófriðnum ekki slotar. Það hefir verið mér sérstakt gleðiefni að síðan eg kom til Chicago, hafa mér gefist tækifæri að prédika á helgum fyrir ýmsa söfn- uði í borginni eítir því sem ástæður hafa leyft. Prestafæðin fer sífelt vaxandi. Eg mundi ekki auðveldlega hafa hætt öllu prédikunarstarfi, en með þessu móti þarf eg ekki að leggja niður það, sem verið hefir lífsstarf mitt nú bráðum í þrjátíu og níu ár. Get jafnhliða lagt fram minn litla skerf til þjóðhollustu. í fyrri heimsstyrjöldinni hafði eg hlotið útnefningu sem herprestur eftir að fullnægja öllum ski'lyrðum í júní 1918, en fékk tilkynningu um að eg væri kvaddur til starfs rétt á undan vopnahléinu 11. nóv. Var tilkynningin þá eðlilega afturkölluð. Nú er eg ekki lengur á því aldursskeiði að geta hlotið þá stöðu. Þetta trúnaðar- starf kemur þá í þess stað. Mig hefir langað til þess að vera heilsteyptur kirkjumaður og þar næst trúverðugur Bandarikjamaður af íslenzkum stofni. Engar hömlur eru á þessu nú nema eigið getuleysi. Eg vil láta þess getið að lögheimili mitt heldur áfram að vera Seattle. þó nú sé utanáskrift mín 2221 S. California Ave., Chicago, 111. — Þegar þetta er ritað er eg með góðu móti að leggja af stað í ferð á framkvæmdanefndarfund í Winnipeg. Eins mun eg geta sótt kirkjuþing. Frá þessu er skýrt hér tii þess öllum megi vera kunnugt hvernig sakir standa. Chicago, 111., 7. apríl 1943. K. IC. Ólafson. Minniál Betel í erfðaskrám yðar

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.