Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1933, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.09.1933, Blaðsíða 15
177 mun yfirleitt vera gott samkomulag. Síðasta sunnudaginn í'lutti eg fermingarguðsþjónustu í Wynyard í kirkju Sam- bandssafnaðarins þar, sem er miklu stærri en kirkja lúterska safnaðarins. Var kirkjan mjög góðfúslega lánuð af hlut- aðeigendum. Ekki er því að neita að nokkuð oft er vikið að í tali mögulegri samvinnu milli þessara klofninga í frain- tíðinni. Læt eg ósagt hvað úr því kann að verða, en mér virðist að það muni að ekki litlu Ieyti hvíla á því hvort söfn- uðirnir, án þess að renna saman, gætu orðið ásáttir um að kalla sama prest. Það væri eflaust líklegasta leiðin til árang- urs—tilraun, sem menn gætu þá horfið frá aftur ef hún ekki hepnaðist. Hafa margir verið að velta þessu fyrir sér og munu flestir ætla að þetta væri helst tiltækilegt, ef nolckuð a'tti að reyna. Telji menn þetta óhugsandi, eru litlar líkur til að fyrst um sinn verði nokkuð úr samvinnu. En hvað sem því líður er það fagnaðarefni þegar dregur úr persónu- legum erjum og óvild í sambandi við kirkjulega klofninga. í austurhluta bygðarinnar hefir um nokkurt skeið ver- ið starfandi að kristindómsmálum guðfræðisnemandi, Páll G. Johnson. Foam Lake söfnuður kallaði hann til þjónustu um eins árs skeið, og er honum af kirkjufélaginu veitt um- hoð að vinna prestsverk þann tíma. Hann flytur guðsþjón- ustur reglulega einnig í Westside skólanum skamt frá Leslie, og að Kristnesi og í Hólabygð við og við. Mun hann í prest- leysinu einnig flytja guðsþjónustur við tæltifæri í vestur- hluta bvgðanna. Hefir hann unnið mikið verk á liðnu sumri að því að heimsækja fólk i kristindómserindum og glæða á- huga fyrir kristilegri uppfræðslu. Var hann að uppfræða 38 ungmenni undir fermingu meðan eg var í nágrenninu. Mun ferming þeirra nú afstaðin. Var starfi hans tekið vel og hefir hann sýnt sig ötulan og áhugasaman í hvívetna. Ætlar hann aftur á komandi vetri að sækja prestaskólann lúterska í Saskatoon, en um helgar mun hann vitja starfsins í Vatnabygðunum og flytja guðsþjónustur. Sannfærðist eg enn betur um það en áður að það er fullkomið starfssvið fyrir tvo presta i þessum bygðum, og vona eg að í þá átt verði unnið að innan skamms megi verða þar tveir búsettir kenni- menn. Þessar bygðir eru með blómlegustu og fegurstu bygðum Vestur-fslendinga. Einnig eru þær með fjölmennustu bygð- unum. Er þar enginn liðskortur af ágætu og myndarlegu fólki, sem er efniviður í þróttmikið og framtakssamt félags- líf. Ungmennahópurinn, sem eg fermdi, var skipaður hinum

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.