Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1924, Qupperneq 11

Sameiningin - 01.11.1924, Qupperneq 11
329 deildar kirkjunnar heimsótti íslenzka kirkjufélagiÖ á siðasta þingi þess og- flutti oss vinarkve'Öju. Var þaö dr. F. G. Got- wald frá York, Pennsylvania, ritari mentamálanefndar kirkju- deildar sinnar. Munu allir, er þing vort sátu, minnast hans vegna ágætrar framkomu hans og yfirburÖa. Fól þing vort for- seta sínum aÖ flytja United Lutheran Churoh bróÖurkveÖju á þingi því, sem nú er ný-afstaöið. Vegna þeirrar ráðstöfunar sat eg fjóra daga sem gestur á ofangreindu þingi, og vil skýra frá ýmsu í því sambandi, án þess þó að ætla mér aö segja nákvæm- lega sögu þingsins, þvi það yrði of langt mál. Ekki er það ofsögum sagt, að þing þetta hafi vakið mikla athygli. Sjálfur forseti Bandaríkjanna, Coolidge, sendi þing- inu kveöju sína og virðuleg ummæli. Báru orð hans þess ljós- an vott, að hann hefir glöggan skilning á þýðingu þess mikla starfs, sem lúterska kirkjan hefir unnið hér í álfu. Get eg ekki stilt mig um að tilfæra lauslega þýðingu á orðum hans. Eftir að hann hefir ávarpað forseta United LutheranChurch, farast honum orð á þessa leiö: “Eg sendi kveðju mína fjórða þingi United Lutheran Church í Ameríku. “Mynduð að svo miklu leyti af afkomendum þess öfluga lút- erska kynstofns, sem átti þýðingarmikinn þátt í þroskun ný- lendanna og í frelsisbaráttunni, á United Lutheran Church fagran arf. “Þegar eg hugsa um þær þrjár miklu mannlífshreyfingar í amerísku nýlendunum, Púrítanana í Nýja Englandi, þá lútersku og Kvekarana í Pennsylvaníu og riddarana (cavaliers) í Virginíu- og athuga söguna um samruna þeirra í blóði og einingu andans, skilst mér, að þessi samruni og eining sé einn af hyrningarstein- um Ameriku. “Muhlenberg og menn hans, frá Pennsylvaníu, lúterskir hermenn frá vesturhluta Maryland og Shenadoah dalnum í Vir- giníu og frá vesturhluta Norður- og Suður-Carolina, áttu fræga sögu í þjónustu ættjarðarástarinnar í frelsisstríðinu. Afkom- endur þeirra, er dreifðust yfir Mississippi-dalinn, tóku leiðandi þátt í þroskun þess mikla kornforðabúrs heimsins. “í þrælastríöinu voru flokkar eins og járn-herdeildin , ýThe Iron Brigadeý á hverjum orustuvelli að verja einingu ríkjanna. _“Er það lítil .furða, að með slíka sögu til að blása eldmóði í brjóst sonum þeirra og sona-sonum, gengu sex af hundraði af meðlimum lútersku kirkjunnar í Ameríku ,í þjónustu þjóðar

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.