Sameiningin - 01.11.1924, Qupperneq 21
339
hafi fram á vora daga, og verður hún því ekki flækt í spurn-
ingum né látin sæta rannsóknum sálfræðinga. Það er audvelt
aS vísa henni á foug og segja, að hún hafij verið veikluð kona og
átt vanda fyrir hugaræsingum. Vér vitum, að sumar konur
geta stundum komist í ákafar geðshræringar, og að þær írnynda
sér þá ýmsa hluti, sem ekki eiga sér stað; og getur þá ekki ver-
ið, að María frá Magdölum hafi heyrt þeim hópi til? Og þar
með er málinu vísað frá, með ofur-handhægu móti. En það
er ekki eins auðvelt að losast við Pál postula. Dómendum hans
til stórra vandræða, þá var hann karlmaður, og þaö maSur með
staðgóðum og ákveðnum karaktér; enginn málsmetandi maSur
hefir enn sem komið er vogað sér aS halda þvi fram, að Páll
hafi aldrei verið til. Og hann gjörði þeim herrum enn erfiðara
fyrir um tilgátu-spunann með því að skrifa mörg bréf, er sum
hafa komist i vorar hendur; og i bréfum þeim er urmull af
sönnunum, sem vöflur geta ekki hrundið, um hugar-heilbrigði
postulans. Hann fjallar þar ekki nerna við og við um víðtæk
eða hugræn efni; það, sem honuum verður skrafdrjúgast um,
eru áþreifanleg og flókin vandkvæði daglegs lifs. Hann svar-
ar spurningum, gefur ráö, veitir áminningar og viðvörunarorð í
tíma töluð, lifir og hrærist mitt í þyrping daglegra viðburða, sí-
reiðubúinn með bendingar og athugasemdir, og sýnir og sannar
upp aftur og aftur, að hann er fimleiks-maður andlega, framsýnn
og réttdæmur. VeriS getur, að hótfyndinn gagnrýnandi vorrar
aldar hrópi með Festusi: “Óður ert þú orðinn, Páll.” En svar-
ið hljómar úr bréfum postulans, rólegt, skýrt og sannfærandi:
“Ekki er eg óður, göfugi dómsmaður, heldur mæli eg sannleiks
og stillingar orð.” G. G.
•o-
Heimahögum.
Kristnibo'Sarnir, séra Octavíus og frú Karolína Thorlakson, lögSu
á staö, ásamt börnum sínum, áleiðis til Japan i öndverðum þessum
mánuSi, eftir tveggja ára dvöl hérlendis. Búast þau við að taka
aftur viS starfinu í Nagoya fyrir hönd United Lutheran Church og
vera í þjónustu þess félags þar eystra næstu sjö árin. Hugheilar
blessunar-óskir fylgja þeim.
Árdals-söfnuSur í Árborg hélt samkomu rnjög myndarlega þ. 7.
þ.m. í tilefni af þakkarhátíS þjóSarinnar. Stóö samkoman í sam-
komuhúsi þorpsins og var margmenn. Fyrir samkomunni stóS