Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.11.1924, Side 23

Sameiningin - 01.11.1924, Side 23
341 “Heimahögum” væri mikil þæg'ð í því, að prestarnir létu þeim mánaðarlega í té fréttir úr sóknum sínunr. Gerið það, bræður. -------o------- | FYRIR UNGA FÓLKIÐ. ! I DeilcL þessa annast séra Friðrik Hallgrímsson. í ----------------------------------------4 Dökkur dánumaður. fNiðurlag.J “Við höfðum ekki dvalið lengi í Havana-höfn, þegar við gerð- um okkur grein fyrir því, að eitthvað Stórkostlegt var að í borginni.” sagði skipstjórinn, er hann hélt áfram sögu sinni. “Ekki langt frá okkur lá skip, sem hafði gult flagg við hún. Vissum við þá, að það var gula sýkin, sem hér hafði ráðið sér heimaland. Síðar, þegar hafnarlæknirinn kom um borð, sagði hann okkur, að hina síðustu daga hefði fólk dáið í borginni í tugatali. Þess vegna ákvað eg, að hlaða skipið þar sem við lágum, utarlega á höfninni, en gaf ströng boð um það, að engum væri veitt landgönguleyfi. Það skal eg segja var mér stórt gleðiefni, er lokið var hleðslu þarna úti á höfninni. og við gátum byrjað ferðina löngu heim til Englands. Olivia gamla gerði sitt bezta til að flýta sér, er við sigldum frá Havana, úr sótt- hættunni, út á hið breiða blikandi haf. En gula sýkin gekk ekki fram hjá okkur, þótt við gerðum okkur fagrar vonir um það. Einn maður hafði óhlýðnast skipan minni, og farið í land, meðan við vor- um í H'avana. Hefði eg vitað um landgöngu hans, myndi hann aldrei hafa átt afturkvæmt á skipið. Eins og þið líklegast rennið grun í, þá var þetta aðstoðar-vélstjórinn, — Shelby. Ef til vill var það vínlöngunin, sem rak hann í land. Tveim dögum eftir að við sigldum úr höfn, kom hann aftur í káetu til þess að fá meðul. Eg veitti því eftirtekt, að hann var mjög óstyrkur og slagaði, er hann gekk. Augu hans báru með sér sjúkdómsmerki. Eg sagði ekki neitt, en bar þögulan kvíða í brjósti, að hér væri um alvarlega veil.u að ræða. Næsta dag sá eg, að hann leit enn ver út, — en beið samt átekta. Nóttina þar á eftir féklc eg vissu| um það, sem eg að þessu hafði óljósan grun um. Eg var rétt nýlega genginn til svefns, — þegar eg heyrði hávaða uppi á þilfari; hraðaði eg mér því upp, kom; eg á þilfar rétt í tíma til að sjá nakinn mann henda sér fyrir borð. Fáir voru á þilfari, að eins nokkrir þeirra, sem vöku áttu á þessum tíma. En nú bergmáluðu um alt skipið orðin; ‘Maður fyrir borð!’ Vélarnar voru stöðvaðar. Báti var hleypt niður, og björgunartilraun gjörð. En því miður gekk ekki að losa bátinn. Alt, sem tilheyrði

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.