Sameiningin - 01.12.1926, Page 17
367
Jólaljóð.
Eftir frú Jakobínu Johnson.
Lag: “Ó, þá náð aS eiga Jesúm.” — G. Wjenneberg.
Græna tré með greinum fríÖum
Greipt sem tákn í barnsins sál,
Mynd þín von og vorhug glæðir,
— Vermir andann huliðsmál1.
Fegurð þín á þúsund tungum
Þúsund göfug hugtök ljær.
Ljósa-dýrSin draum-ljúf vekur
Dulin öfl og guði kær.
Helga nótt, sem hugir vorir
Helga fæSing Meistarans,
Flyt þú oss í orði’ og anda
Enn á ný að fótum hans.
Sýn oss ást hans ævarandi,
Auðmýkt hans og fórnfúst geð.
Letra skýrt í ljósum þínum
Líking hans um græna tréð.
Stjörnu-leiftur ljúfrar nætur,
LjóSstaf fögrum snert þú sál.
Gef sú hrifning himinborin
Háleitt rómi kærleiks-mál.
Hjörtun þrá, að heimur allur
Hefji friSarmerki hans,
Sem vér helgum hátíð barnsins,
-— Hátíð ljóss og kærleikans.
Vörn gegn áhyggjum.
Eftir prófessor Harald Níelsson.
Vér þekkjum það mörg af reynslu, að baráttan við áhyggj-
urnar er ærið hörð og lýjandi. En margur maðurinn hefir varist
áhyggjum imeð nægilega staðfastri trú á forsjón gæzkuríks' Guðs
og á góðleik tilverunnar. Eg játa, að það er oft griöar-átak fvrir
oss að eignast þá sannfæring eða jafnvel það eitt, að halda henni,
hafi hún eitt sinn veriö fengin — þegar mestu raunirnar og stærstu