Sameiningin - 01.06.1920, Blaðsíða 29
189
III. LEXÍA. — 18. JÚLÍ.
Davíð þyrmir Iífi Sáls—1. Sam. 26, 7-17. 21.
Minnistexti: Elskið óvini yðar; gjörið þeim gott, sem
hata yður—Lúk. 6, 27.
1. Hvenær görðist þetta, sem hér er sagt frá? Nálega
tveim árum eftir flótta Davíðs. 2. Hvar hafðist hann við? í
Júda-öræfum, nálægt Dauðaihafi — og flokkur útlægra manna
með honum. Hvað leið ofsóknum Sáls? Hann fór tvisvar í
leiðangur móti DaVíð, og tvisvar lét Drottinn Davíð eiga ráð á
láfi hans. petta, sem hér segir frá, gjörðist í síðara skiftið. 4.
Hver var Abísaí? Hann var systursonur Davíðs. 5. Hvað
vildi hann gjöra? pegar liðið var alt í fasta svefni umhverfis
Sál, þá komust þeir DaVíð inn í herbúðir Ihans, og vildi Abísaí
drepa konunginn. 6. Hvað sagði Davíð um það? Hann vildi
ekki leggja 'hendur á Sál; sagði, að líf hams væri í Drottins
hendi. 7. Hvað gjörði Davíð í þess stað? Hann tók spjót Sáls
og vatnsskál frá höfðalagi, Sáls, og Ihafði Iburt með sér, til sann-
inda merkis um að ihann hefði verið þar og átt ráð á lífi kon-
ungs. 8. Hvað sagði Sál, þegar hann varð þess var, sem Ðavíð
hafði gjört? “Eg hefi syndgað, hverf aftur, sonur minn, því
að eg skal aldrei framar gjöra þér mein.” 9. Fór þá Davíð
heim aftur? Nei, íhann treysti ekki iðrun Sáls, því að konung-
ur hafði rofið isamskonar heit áður. 10. Hvað lærum við af
þessu? a. Guð hafði 'hafnað Sál; varðliðið í kringum hann var
steinsofandi. Hafir þú ekki Guð með þér, þá er fylgd mann-
anna lítils virði. b. Tviisvar lét Drottinn hatrið verða sér til
minkunnar, en veglyndið hljóta heiður fyrir allra augum. Lát-
um aldrei óvi.ld stjórna lífi okkar. c. Davíð vann dýrlegan
sigur yfir óvini sínum með lífgjöfinni. Hitt hefði enginn
sigur orðið, að vega á Ihonum sofandi. Göfuglyndi á aldrei
skylt við lítillmensku. pað er ætíð hetjulegt og sigursælt, að
launa ilt með góðu. d. Davíð vissi, að Drottinn myndi á sín.
um tíma leiða hann úr útlegðinni. Vígið því óþarft. “Mín er
hefndin, eg mun endurgjalda,” segir Drottinn. e. Davíð gat
afsakað sig með því að segja, að Ablsaí hefði drepið Sál; en
það var 'honum ekki nóg. Ef hugur þinn samþykkir einhverja
synd, þá ert þú sekur, þótt hendur annara manna framkvæmi
verkið. Iðrun Sáls og játning var fánýt, af því að hann bætti
ekki ráð sitt.
IV. LEXÍA. — 25. JÚLÍ.
Davíð tekur ríki eftir Sál—2. Sam. 2, 1-7; 5, 1-5.
Minnistexti: Treystu Drotni af öllu hjarta, en reiddu
þig ekki á eigið hyggjuvit—Orðskv. 3, 5.