Sameiningin - 01.06.1920, Blaðsíða 30
190
1. Hve lengi var Davíð í útlegðinni? Sjö ár. 2. Hver
urðu afdrif Sáls og Jónatans? peir biðu ósigur í ófriði við
Filista. Jónatan féll í bardaganum og Sál réð sér bana. 3.
Yar Davíð tekinn til konungs yfir öllu landinu undir eins?
Nei, ísrael (>. e. ættkvíslirnar í norðurhluta landsins) tók
Isboset, son Sáls, til konungs yfir sig, en Davíð var tekinn til
konungs yfir Júda. 4. Hvað varð um Isboset? Hann var
myrtur. 5. Hvernig reyndist Davíð ættmönnum Sáls? Hann
reyndist þeim vel. Harmaði Sál og Jónatan, lét taka morð-
ingja Isbosets af lífi, og tók að sér son Jónatans, fatlaðan mann.
6. Með hverjum hætti varð Davíð konungur yfir Israel? ísraels-
menn kusu hann til konungs yfir sig, nokkru eftir dauða Isbo-
sts. 7. Hve lengi ríkti Davíð yfir Júda einum? Sjö ár og sex
máuði. 8. Hve lengi ríkti hann yfir öllu landinu? prjátíu og
þrjú ár. 9. Hvað getum við lært af þessari lexíu? a. Davíð
spurði Guð ráða, áður en hann fór heim til Júda-héraðs. (Hann
átti heima í Filista-landi, þegar Sál féll.). Vér eigum aldrei
að gjöra neitt, sem miklu varðar, án þess að leita fyrst ráða hjá
Drotni. b. Davíð var hafinn frá smalamensku til konungstign-
ar, af því að hann leitaðist við að gjöra Guðs vilja. Vegurinn,
sem hann varð að ganga, var oft þröngur og grýttur, en hann
lá til konungstignar. pröngi vegurinn, sem Jesús býður okkur
að ganga, er studum erviður—en hann er gæfuvegur; því meg-
um við ekki gleyma. c. Konungar í fornöld voru vanir að taka
af lífi öll skyldmenni keppinauta sinna, til þess að gjöra sjálfa
sig fastari í sessi. Davíð fórst öðru vísi við ættmenn Sáls,
og varð vinsæll konungur og ríkti lengi. pað er heimska að
hugsa sér, að eigingirni og harka sé gæfuvegur. d. Davíð
brauzt ekki til valda, en þó varð hann konungur á endanum, af
því Guð hafði valið hann. Sá sem hefir Guð með sér, þarf ekki
að trana sér fram með ofbeldi.
V. LEXIA. — 1. ÁGÚST.
Davíð flytur örkina til Jerúsalem
2. Sam. 16, 11-19; Sálm. 24, 7-10.
Minnistexti: Gangið inn um hlið hans með þakkargjörð,
í forgarða hans með lofsöng—Sálm. 100, 4.
1. Hvernig farnaðist Davíð, eftir að hann varð konungur?
Guð var með honum og veitti honum sigur yfir óvinum ísraels.
2. Hvaða borg tók hann frá heiðnum mönnum? Borgina Jerú-
salem, nálægt landamærum Júda og Benjamíns. 3. Hvað
gjörði hann eftir að sú borg var unnin? Settist þar að, víggirti
borgina, reisti sér þar höll og flutti sáttmálsörk Drottins þang-
að. 4. Hvar hafði örkin verið? Hún' hafði verið geymd í
nokkra mánuði í Bet-Semes, eftir að Filistar skiluðu henni
aftur. (Sjá vi. og vii. lexíu síðasta ársfjórðungs). Síðan var