Sameiningin - 01.12.1909, Síða 13
315
vissu urn sannleikann, og það er, að þetta er ekkert
manni sjálfum að þakka. Að finna sannleikann er
manni ofvaxið. Guð verðr a,ð koma með hann til manns
og leggja hann upp í hendrnar á manni. Allt, sem maðr
getr gjört, er að veita sannleikanum móttöku. „Af náð
guðs er eg það eg er“ — segir Páll postuli (1. Kor. 15,
10), og enn fremr: „Því af náðinni eruð þér hólpnir
orðnir fyrir trú; og það er ekki af yðr; guðs er gjöfin“
(Ef. 2, 8). Látum oss öll muna þetta. Vér erum van-
máttug og svndug'. Guð er almáttugr og lieilagr. Hann
verðr að h.'álpa oss með almætti sínu. Hinn heilagi
vilji hans . r a;ð hjálpa öllum til síns ríkis fyrir trúna á
hans bles.aða son, drottin Jesúm Krist. Uin þetta vill
hann sannfœra oss. í þessum sannleika vill hann helga
oss. Sé það þá guðs gjöf til allra efandi sálna, nú um
jólin, að eignast heila og fagnaðarríka trú á Jesúm
Krist sem frelsara sinn og drottin.
Guð gefi öllurn blessuð og gleðileg jól í Jesú nafni!
--------0-------
BRIGHTEST AND BEST OF THE SONS OF THE MORNING.
Jólasálmr eftir R. Heber,
þýddr á íslenzku af hr. Jóni Runólfssyni.
1. Dag þinn lát, mætasti morgunsins sona!
myrkrunum renna, og hönd þína’ oss ljá;
austrœna stjarna! er veg gyllir vona,
vísa oss barns-ásján frelsarans á.
2. Kaldar á reifar hans daggperlur drjúpa;
dávær er hvíld hans í saúðfjárins krá;
lágt o’n að jötunni ljósenglar krjúpa,
lausnarann, skaparann, herrann að dá.
Ö. Skulu þá ilmfórnir helzt vera hœfar
helgar frá Edom og sœmd honum nóg,
gimsteinar fjalla og gljáperlur sævar,
gullið úr námum og mirran úr skógf