Íslendingur


Íslendingur - 06.10.1916, Blaðsíða 4

Íslendingur - 06.10.1916, Blaðsíða 4
164 ISLENDINOUR 41. tbl. JVIótorbátur til sölu. Undirritaður hefur mótorbát til sölu nú þegar. Báturinn hefir ó hk. Scandiamótor, línuspil, ágæt segl og fl. Öll veiðarfæri til þorskveiða fást líka ef um semur. Alt nýlegt og nýtt. Siglufirði 3% ’16. Hallgiímiu Jónsson. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Hús til sölu á Siglufirði, við aðalgötuna, tvílyft verslunar- og íbúðarhús. Væntanlegur kaupandi snúi sjer til undirritaðs fyrir síðasta október þ. á, Hallgrimur Jónssor). 106 »Lestu það, Frank, blessaður iestu það!« Pað er ekki skemtilegt að lesa hól um meðbiðil sinn, en verst er það þó,f ef sú, sem kept er um, hlustar á það. Jeg las samt eftirfarandi línur með mestu ólund: »Nú sem stendur er tíðrætt um málverk nokkuð, sem kallað er á málverkaskránni »Dauði Caesar*. Höf- undurinn er maður lítt kunnur, þangað til í gær, Angeló nokkur Vasari, ítalskur að ætt, en hefir alið mestan aldur sinn í Lundúnum, Hann kvað vera af Vasariættinni frá 16. öldinni, sem var í miklum metum hjá furstum og páfa, Þótt hann sje ekki nema 25 ára að aldri, hefir hann málað listaverk, sem kemst í full- an samjöfnuð við fegurstu iistaverk þeirra Doré og Géröme. Hvílíkan orðstír hann muni geta sjer, þegar tímar líða, geta menn gert sjer í hugarlund. Pað, sem undarlegast er, er það, að hr. Vasari hefir málað mörg málverk áður, en ekkert þeirra hefir verið betur gert en í meðallagi. Meira að segja hafa málverk hans gefið honum viðurnefnið »11 Divino*, ekki þó vegna þess, að hann þætti svo mjög líkur Rafael, held- ur í skopi. Heyrt höfum Vjer, að málarinn hafi sagt, þegar hann fjekk fyrst að heyra þennan aukatitil: »Jeg skal þó einhverntíma eiga þetta nafn skilið.« Enginn dauðlegur maður getur heinúað árangur verka sinna. En »11 Divino* hefir bæði heimtað hann og náð honum. Hann hefir hafið sig til vegs og virðingar með iðni sinni og ástundum og aflað sjer stórmikilla fjármuna, 107 því að aðgangseyririnn aðeins, til að fá að skoða mynd- ina, hefir numir mjög mikilli fjárhæð. Það er reyndar mjög einkennilegt, að ungur maður skuli alt í einu semja þvílíkt snildarverk, enda vantar ekki ýmsa, sem geta þess til, að hann eigi ekki þann heiður, að hafa gert þetta sjálfur. En framtíðin leysir úr því. Sje Vasari höfundur myndarinnar, munu næstu mál- verk hans eflaust styrkja og fullsanna það mál. Vasari-sýningin er í Rue de Sevres og kostar að- gangur tvo franka. Fyrst sjer sá, er inn kemur, stórar dyr hinumegin í enda salsins. Báðum megin liggja að tjöld, en dyrnar liggja út að gangi, sem veit út að húsabaki og sjest þar í gegn um í heiðan himin gegn um súlnadyr nokkrar. Við eina af súlum þessum liggur maður nokk- ur í hermannsbúningi og má fljótt sjá að hann er dauður, enda ber blóðugt vopn, er hjá honum liggur, þess vottinn. Áhorfandinn gengur nú að dyrunum, til þess að sjá þetta betur, en rekur sig fljótt á, að dyrnar eru aðeins málaðar svo náttúrlega á vegginn, að ómögu- legt er annað en á að villast. Birtan úr glugganum brotnar á svo heppilegum stað á gijáandi myndfletin- um, að ómögulegt er að greina frá heiðum himni. Missýningin er alveg framúrskarandi. Og svo nokkur orð um myndina sjálfa: Caesar liggur dauður, löðrandi í blóði sínu, sveiptur skikkju sinni, Stytta Pompejusar gnæfir að baki hans og brotin vopn og blóðug hjer og þar, en súlur nokkrar að baki. Á myndinni sjást — HANDTASKA — með peningum o. fl. hefir tapast hjer í bænum. Finnandi beðinn að skila henni til kaupmanns Ásgeirs Pjeturssonar. STÓR, GÓÐ eldavjel til sölu með vægu verði. Ritstj. vísa á. Eyfirðingar og nærsveitamentjl Minnist velgjörðamanns yðar, Qeorge H. F. Schrader, og kaupið bókina Hestar og reiðmenn á íslandi. Með því vinnið þjer þrent í einu: i. Fáið margar góðar leiðbeiningar um meðferð hesta. 2. Styðjið líknarstofnun- ina »Caroline Rest«. 3. Styrkið sjúkra- húsið á Akureyri, með því alt sem kem- ur inn fyrir bókina, að frádregnum sölu- launum, gengur til þessara stofnana. fcsr Fæst hjá bóksölum- Lúðraflokkurinn »Hekla« lagði niður starf sitt síðastlið- inn vetur af gildum ástæðum. Þetta gefst almenningi hjer með til kynna. Magnús Einarsson.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.