Íslendingur - 08.12.1916, Blaðsíða 3
50]tbl.
ISLENDINQUR
100
legum ofsa, svo því nær var óstætt í
byljunum. Var þá álitið ófært í sjó að
leggja, og engin bjargráðavon þó reynt
yrði. Hurfu þeir frá við svo búið.
Þetla veður stóð með engum hvíldum
þann dag allan og næstu nótt, en
slotaði undir birtingu. Var þá fremur
óvistlegt í skipinu mest sökum kulda.
Æðruorð heyrðust þó engin, og jeg
held mjer sje óhætt að fullyrða, að
sorg manna yfir slysi þessu og tjóni
því, er þjóðin liði, ef hún misti skip-
ið hafi verið mönnum ríkari í huga,
en hræðslan um lífið. Att var austan
stæð og hjelt sjer þar stöðug; nes-
oddinn dró úr brimið að mestu leyti
og varð þetta hvorttveggja okkur til
lífs.
Á föstudagsmorguninn, þegar ljóst
var orðið, komu vjelabátar úr Aðal-
vík á vettvang. Er skemst frá því að
segja, þann dag var öllu fólkinu og
mestu af farþegaflutningi bjargað í
land og fengum við hinar bestu við-
tökur og reyndum þar ósvikna íslénska
gestrisni, sem nú mun hvergi finnast
jafnglögg, sem í útkjálkasveitum ís-
lands. F*ann dag var rokviðri með
köflum og stórsjór á úthafi. Var því
ekki ráðist til ísafjarðar, fyr en með
birtingu næsta morgun, og náði bát-
ur þangað um kl. 3—4 á laugardag-
inn. Þá flaug fregnin um alt land.
Daginn eftir kom Flora til Aðalvíkur
og tók þá farþega, sem gátu notað
ferð hennar. Hafði hún ekki náð ísa-
firði í bylnum á fimtudagsnóttina og
legið í hafi.
Forvitnisspurningum manna um það,
hvað valdið hafi slysi þessu, og hverj-
um sje helst um að kenna verður ekki
svarað í þessum línum. Það er hvort-
tveggja, að um það er mjer alls ókunn-
ugt enda mundi jeg ekki um það bera,
þó mjer væri það kunnugt. Það mun
koma fram á sínum tíma eftir rjettri
boðleið. Þeir menn, sem þyngsta bera
ábyrgðina munu vissulega taka sjer
þetta slys nær en almenningur tekur
sjcr að dómfella þá að órannsökuðu
máli og mættum við íslendingar temja
okkur það að vera orðfærri á stundum
reynslunnar, en þeim mun alvörumeiri
og sterkari.
Mætti jeg gera nokkura athugasemd
í sambandi við þetta mál, yrði hún
þessi: Hefði sími verið kominn til
Hesteyrar eða Aðalvíkur hefðu unnist
tveir dagar af færu veðri til björgun-
artilrauna. Þá hefði Goðafoss ef til
vill verið aftur kominn á flot.
p. t. Akureyri 5. des. 1916.
Jónas Porbergsson.
Leiðrjetting,*
Herra ritstjóri »Norðurlands« I
í grein í 53- tbl. blaðs yðar þ. á.,
þar sem þjer, meðal annars, getið
þess, að kært hafi verið yfir alþingis-
kosningunum í Eyjafjarðarsýslu, 21.
okt. n. 1., og segið lesendum frá
ýmsum misfellum, sem eiga að hafa
átt sjer stað, f sambandi við nefndar
kosningar, gerið þjer kosninguna í
Hrafnagilshreppi sjerstaklega að um-
talsefni.
*) Samhljóða leiðrjetting ásamt meðfylgj-
andi vottorðum, hefir ritstjóri Norðurlands
Ifoað að taka upp í blað sitt. D. J.
Vegna vörukönnunar
verður
Sölubúð
Kaupfjelags
Eyfirðinga
LOKUÐ
1.—19; janúar næstkomandi.
F/elagsstjóinin.
Út af því leyfi jeg mjer að taka
þetta fram: að það eru tilhœfulaus
ósannindi,
1. að nokkur kjósandi hafi setið við
kjörborðið bjá kjörstjórninni, meðr
an kosningin fór fram,
2. að nokkur kjósandi hafi bent mjer
á, að 29. gr. kosningalaganna væri
brotin.
3. að enginn dyravörður hafi verið.
4. að nokkur kjósandi hafi, mjer vit-
anlega, komið með ósamanbrotinn
kjörseðil fram úr kosningaherberg-
inu (kjörklefanum),
•5. að jeg sem kjörstjóri hafi á nokk-
urn hátt sýnt hlutdrægni eða not-
að stöðu mfna mjer í vil, við nefnd-
ar kosningar. —
Þó margt fleira sje athugavert við
frásögn blaðsins, læt jeg þetta nægja
að sinni.
Kroppi 5. des. 1916.
Davið fónsson.
Við undirritaðir sem vorum f undir-
kjörstjórn Hrafnagilshrepps við alþing-
iskosningarnar 21. okt. n. 1. lýsum
því yfir að framanskrifaðar Ieiðrjett-
ingar kjörstjóra Davfðs Jónssonar við
frásögn »Norðurlands«, eru rjettar
eftir þvf sem okkur er framast kunn-
ugt.
Hranastöðum 5/ii 1916. Grund 5/n 1916.
Pjelur Ólafsson, M. Sigurðsson.
Við undirritaðir, sem kvaddir vor-
um af kjörstjórn Hrafnagilshrepps til
þess að vera dyraverðir við alþingis-
kosningar þær, er fram fóru 21. okt. s.
1. lýsum þvf yfir, að framanskrifaðar
leiðrjettingar oddvita kjörstjórnarinnar
Davíðs Jónssonar, við frásögn »Norð-
urlands*, eru rjettar eftir því sem
okkur cr framast kunnugt.
Hólshúsum 5. des. 1916. Litlahóli 5. d. 1916.
Júlíus Ólafsson, /. Hallgrtmsson.
t
Frú Kristírj Benediktsdóttir,
kona Björns Jóhannssonar frá Ljósa-
vatni, ljest að heimili sfnu sunnudags-
morguninn 3. des. eftir langa og
þunga legu.
Frú Kristín sál. var vel gefin og
fór mikið orð af henni fyrir dugnað
og skörungsskap.
’Þau hjón áttu 2 uppkomna sonu
Þórhall listmálara, og Tómas verslun-
armann, báðir f foreldrahúsum.
Leikhúsið.
»tiinn ímyndunarveikí*, franskur
leikur eftir Moliére, var sýndur hjer í
leikhúsinu á sunnudagskvöldið. Voru
sum hlutverkin fremur laglega af hendi
Ieyst, en önnur nokkru miður, enda
munu sumir leikendurnir aldrei hafa
komið á leiksvið fyrri, en höfðu þó
talsvert örðug hlutverk með höndum
og varð því mikill viðvaningsbragur
á leik þeirra. Viðeigandi búninga gátu
leikendur heldur eigi aflað sjer og er
það að sjálfsögðu stór galli. Yfirhöfuð
sýndist þessi útlendi leikur tæplega
vera við hæfi leikendanna og mundi
hafa verið heppilegra að velja eitthvert
íslenskt leikrit til meðferðar. Þrátt fyr-
ir gallana, sem finna mátti á leik þess-
um, skemti fólkið sjer allvel.
Olímubók,
íslenska glfman er ein af hinum feg-
urstu og héilnæmustu fþróttum sje
rjett með hana farið. Væri það þvf
skaði mikill, ef hún legðist niður eða
spiltist, en því fer betur að það er
ekkert útlit fyrir að svo fari og mun
það að mestu eða öllu að þakka Iþrótta-
sambandi íslands.
íþróttasambandið hefir nú gefið út
bók um fslensku glfmuna. Höfundar
bókarinnar eru: Guðm. Kr. Guðmunds-
son, Hallgrímur Benediktsson, Helgi
Hjörvar, Magnús Kjaran og Sigurjón
Pjetursson. Segir svo í formála bókar-
innartað í. S. í. hafi í hyggju að gefa
smámsaman út kenslubækur f þeim
fþróttum, sem sambandið hefir með
höndum. Er þetta fyrsta kenslubókin
f þessa átt. Mun hún að dómi þeirra,
er best hafa vit á fsl. glfmunni, hafa
tekist prýðisvel, enda eru höfundarnir
fræknir og áhugasamir glfmumenn.
Bókina prýða 36 ljómandi góðar
myndir, nálega allar af glfmubrögðum;
eru þær teknar af Ólafi Magnússyni
ljósmyndasmið, sem einnig er alvanur
glfmumaður.
Af bók þessari ættu aliir fslenskir
sveinar að læra fslensku glfmuna sjer
til lfkams- og sálarheilla.
Dánarfregn.
Ingibjörg Stefánsdóttir, dóttir Stefáns
Guðjónssonar f Gröf f Kaupangssveit,
andaðist um sfðustu helgi. Hafði hún
legið ( mislingum og upp úr þeim
fjekk hún svo lungnabólgu, er varð
dauðamein hennar.
Ingibjörg sál. var efnisstúlka um
þrftugt.
»Framsókoarsjóður íslands«.
Þvf nafni heitir sjóður, er farþegar
á Gullfossi stofnuðu, er skipið var á
leið vestur um haf f haust. Tilgangur
sjóðsins á að vera sá, að »styrkja efni-
lega íslendinga, sem af eigin ramleik
hafa ekki fjárhagslegar ástæður til
þess að afla sjer þeirrar mentunar,
sem það Iffsstarf krefst, er þeir hafa
valið sjer«.
í sjóðinn söfnuðust þegar 3000 kr.
og gaf hr. Thor Jensen helminginn
af þeirri upphæð. Hann er og talinn
frumkvöðull að sjóðstofnun þessari.
Ennfremur hjet hann þvf að gefa
honum 3000 kr. árlega i næstu 5
ár, ef hann lifir. Er f ráði að leita
sjóðnum ssmskota nú þegar vfða um
land og lfklegt að margir bregðist vel
við þeirri málaleitun, þvf sjóðurinn ætti
að geta orðið til mikils menningarauka
f framtfðinni.
íslendlngar helm.
Með Gullfossi kom hingað til Ak-
ureyrar Anton fóhannesson frá Yzta-
gerði f Eyjafirði. Hefir hann dvalið 6
ár f Amerfku, lengat af f Bandarfkj-
unum, en ráðgerir að setjast nú að
hjer heima. Hann segir að 35 íslend-
ingar hafi alls fluttst frá Amerfku til
íslands með Gullfossi og nokkrir komu
með Goðafossi og flest sje það fólk,
sem ekki ætli að hverfa vestur aftur.
60 ára hjónaband.
Kristján Ásmundsson og Guðrún
Andrjesdóttir í Vfðigerði í Eyjafirði,
voru búin að vera 60 ár f hjónabandi
f haust. Er Kristján 84 ára og kona
hans tveim árum eldri. Bæði hafaþau
haft furðanlega góða heilsu að þessu.
Staka.
Eflaust muniu innra grð/ar,
œrið smár varð fengur þ'utn,
lítilþœgi lambskinnsþjófar,
löngu-fingra eigandinn.
M. E.